Stjóri Watford: Ég sagði Costa að ég elska hann Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. febrúar 2016 09:00 Félagarnir ræða saman. vísir/getty
Quique Sánchez Flores, knattspyrnustjóri Watford, átti fallega stund með Diego Costa, framherja Chelsea, eftir markalaust jafntefli liðanna í 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi. Spánverjinn faðmaði og kyssti samlanda sinn sem lét öllum illum látum í fyrri hálfleik og fiskaði gul spjöld á tvo varnarmenn Watford og fékk eitt sjálfur. Undir lok fyrri hálfleiks ætlaði allt að sjóða upp úr þegar Costa ýtti Juan Carlos Paredes, bakverði Watford, í jörðina, en Paredes var nú ekki saklaus því hann hafði skömmu áður sparkað Costa niður. Áður en að allt varð vitlaust stökk Sánchez Flores til og faðmaði Costa við hliðarlínuna og róaði hann niður. Þeir þekkjast vel eftir að Sánchez Flores þjálfaði framherjann hjá Atlético Madríd fyrir fimm árum síðan. „Ég skil Costa því ég þjálfaði hann og ég veit að hann vill berjast á móti öllum leikmönnum. Það gerðist samt ekki neitt,“ sagði Quique Sánchez Flores eftir leikinn. Aðspurður hvað fór þeirra á milli í leiks lok svaraði Spánverjinn: „Ég sagði Costa að ég elska hann!“ „Ég elska karakterinn. Ég vil frekar að mínir menn séu svona karakterar en einhverjir ísmenn á vellinum. Þegar þú ert þjálfari viltu vera með svona mann inn á vellinum. Það er alveg frábært,“ sagði Quique Sánchez Flores.
Enski boltinn Mest lesið Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti „Langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð“ Körfubolti Arfleifð Cool Runnings lifir áfram á Ólympíuleikunum Sport Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Ármann 93-102 | Ármenningar unnu í Keflavík Körfubolti „Mig kitlar svakalega í puttana“ Handbolti „Of margir sem reyndu að bjarga leiknum“ Körfubolti Leik lokið: ÍR - Stjarnan 109-118 | Stjörnumenn áfram á sigurbraut Körfubolti Fleiri fréttir Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Sjá meira