Innlent

Meiri aðsókn í Kvennaathvarfið um jólahátíðina

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
„Það voru 18 íbúar skráðir inn hjá okkur um jólahátíðina, sem er svona ívið meira en alla jafna á jólunum,” segir Sigþrúður.
„Það voru 18 íbúar skráðir inn hjá okkur um jólahátíðina, sem er svona ívið meira en alla jafna á jólunum,” segir Sigþrúður. Vísir/GVA
Meiri aðsókn var í Kvennaathvarfið um jólahátíðina en síðustu ár. Framkvæmdastýra athvarfsins segir erfiða stöðu á húsnæðismarkaði valda því að konur dvelja lengur í athvarfinu en áður.

 

Kvennaathvarfið er athvarf fyrir konur og börn þeirra þegar dvöl í heimahúsum er þeim óbærileg vegna andlegs eða líkamlegs ofbeldis eiginmanns, sambýlismanns eða annarra heimilismanna. Þá er athvarfið einnig fyrir konur sem hefur verið nauðgað.

 

Sigþrúður Guðmundsdóttir, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, segir í hádegisfréttum Bylgjunnar að jólahátíðin hafi gengið með friðsamlegum hætti.

„Það hefur þó verið fjölmenni hjá okkur. Það voru 18 íbúar skráðir inn hjá okkur um jólahátíðina, sem er svona ívið meira en alla jafna á jólunum,” segir Sigþrúður.

Erfiðar aðstæður á húsnæðismarkaði

Hún segir Kvennaathvarfið hafa tekið á móti um 200 konum og börnum í ár, sem sé sambærilegt við fyrri ár.

„Það sem er kannski óvenjulegt við þetta ár er að hver kona dvelur talsvert lengur heldur en verið hefur undanfarin ár. Þannig að svona fjöldinn í húsinu á hverjum degi, að meðaltali, er talsvert hærri heldur en undanfarin ár,” segir Sigþrúður.

Er eitthvað sem að skýrir það?

„Það er sjálfsagt eitt og annað sem að skýrir það. Ég held að það sem skýrir flest tilfellin séu kannski bara erfiðar aðstæður á húsnæðismarkaði þannig að konur komast seinna frá okkur heldur en verið hefur,” segir Sigþrúður.

Fjölga herbergjum og auka pláss

Hún segir fyrirsjáanlegt á nýju ári að húsnæðismarkaðurinn verði skjólstæðingum athvarfsins áfram erfiður. Fyrirhugað sé að fara í framkvæmdir á húsnæði samtakanna.

„Húsið er kannski miðað við aðsókn að verða of lítið fyrir okkur. Þannig að við stefnu á svolitlar framkvæmdir á nýju ári. Að stækka húsnæðið svolítið innan frá.”

Fjölga þá herbergjum?

„Já fjölga herbergjum og svona auka pláss fyrir dvalargestina,” segir Sigþrúður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×