Innlent

Tvö kynferðisbrot komu á borð neyðarmóttökunnar um helgina

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá neyðarmóttöku Landspítalans.
Frá neyðarmóttöku Landspítalans. vísir/Heiða Helgadóttir
Tvö kynferðisbrot komu inn á borð neyðarmóttöku Landspítala um helgina. Annað málið kom upp á höfuðborgarsvæðinu þar sem Hinsegin dagar fóru fram en hitt málið kom upp á Vesturlandi.

Nokkuð hefur verið fjallað um það í fjölmiðlum hversu margir hafa leitað til neyðarmóttökunnar í sumar vegna kynferðisbrota. Þannig komu sex mál upp um og eftir verslunarmannahelgina, sex mál komu upp eina viku í júní og þá komu ellefu mál inn á borð móttökunnar fyrstu tvær vikurnar í júlí.

Hrönn Svansdóttir segir í samtali við Vísi að málin komi dálítið í skorpum inn á neyðarmóttökuna en að meðaltali yfir árið séu þrjú til fjögur mál sem rati þangað í hverri viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×