Innlent

Arnarfellið missti nokkra gáma í sjóinn

Atli Ísleifsson skrifar
Arnarfellið.
Arnarfellið. Vísir/Stefán
Arnarfell, skip Samskipa, missti nokkra gáma í sjóinn í slæmu veðri á siglingu um miðja vegu milli Hjaltlandseyja og Færeyja skömmu eftir klukkan níu í morgun.

Í frétt á vef Samskipa segir að áhöfnin sé óhult og ekki séu sjáanlegar skemmdir á skipinu.

„Arnarfellið er á hægri siglingu til Færeyja og er áætlað að skipið komi til hafnar seint í nótt en gert er ráð fyrir því að veður gangi niður á svæðinu þegar líður á daginn.

Umfang tjóns verður metið við komu skipsins til Færeyja,“ segir í fréttinni.

Nokkrir mánuðir eru síðan Helgafell, skip Samskipa, missti nokkra gáma í sjóinn og nokkrir gámar riðluðust um borð þegar skipið fékk á sig brotsjó suðvestur af Færeyjum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×