Agüero tryggði Manchester City sigur og annað sætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2016 21:30 Sergio Agüero. Vísir/Getty
Manchester City er komið upp í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 útisigur á Sunderland í kvöld. Argentínumaðurinn Sergio Agüero var hetja liðsins en hann skoraði eina mark leiksins snemma í fyrri hálfleiknum. Þetta var aðeins annar útisigur Manchester City liðsins í deildinni í síðustu níu leikjum liðsins utan Ethiad-leikvangsins. Sergio Agüero kom Manchester City í 1-0 eftir sextán mínútna leik en hann hafði áður fengið gott færi til skora fyrsta mark leiksins. Agüero fékk boltann eftir hálfmisheppnað skot Jesús Navas. Agüero gat bætt við öðru marki tólf mínútum síðar og Manchester City var mun sterkara liðið. City-menn máttu þó þakka fyrir það að fá ekki á sig jöfnunarmark fyrir hálfleik. Emanuele Giaccherini fór illa með algjört dauðafæri eftir aukaspyrnu á 34. minútu og mínútu fyrir hálfleik fengu heimamenn í Sunderland tvö dauðafæri í röð, fyrst varði Joe Hart frá Jermain Defoe og svo skaut Billy Jones í stöngina úr frákastinu. Manchester City hélt velli og landaði síðan sigrinum eftir rólegan seinni hálfleik.
Enski boltinn Mest lesið Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Enski boltinn „Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“ Fótbolti Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? Íslenski boltinn Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Íslenski boltinn Blikarnir hoppuðu út í á Fótbolti Reyndu að ráða Solskjær áður en þeir réðu svo Heimi Hallgríms Fótbolti Trump réði sjálfan sig í stórt starf á Ólympíuleikunum Sport Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Handbolti Sjáðu Hákon leggja upp mark fyrir Giroud Fótbolti Fleiri fréttir Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Sjá meira