Sagðir hafa njósnað um viðræður Samúel Karl Ólason skrifar 24. mars 2015 12:47 Benjamin Netanyahu og Barack Obama. Vísir/AFP
Ísraelsmenn eru sagðir hafa njósnað um kjarnorkuviðræður Bandaríkjanna og Íran. Þær upplýsingar sem þeir öfluðu munu þeir hafa notað til að vinna gegn mögulegu samkomulagi innan Bandaríkjanna, með þrýstihópum og öðrum leiðum.Wall Street Journal hefur eftir embættismönnum frá Bandaríkjunum að njósnirnar hafi hafist í fyrra. Ísraelar telja að Bandaríkin muni láta of mikið eftir í viðræðunum við Írani um kjarnorkuuppbyggingu þeirra. Það segja þeir dragi úr öryggi Ísrael. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, fór til að mynda til Bandaríkjanna á dögunum og hélt ræðu í þinginu þar til að mótmæla viðræðunum. Það gerði hann í óþökk Barack Obama, forseta Bandaríkjanna. Í kjölfar þess sendu 47 repúblikanar á öldungadeild þingsins bréf til yfirvalda í Íran, þar sem þeir sögðu að sá forseti sem tæki við af Obama myndi ekki standa við samkomulag við Íran. Samkvæmt gögnum sem WSJ komst yfir hafa yfirvöld í Bandaríkjunum lengi vitað af því að Ísrael njósni um Bandaríkin, sem njósna einnig gegn Ísrael. Bandaríkin komust yfir sendingu gagna á milli embættismanna í Ísrael, sem innihélt upplýsingar sem Bandaríkjamenn segja að þeir hefðu eingöngu getað fengið í gegnum njósnir. Á vef Guardian kemur fram að Ísraelar segjast ekki hafa njósnað um viðræðurnar. Þeir neituðu hins vegar ekki að þeir hefðu komið höndum yfir upplýsingar um viðræðurnar. Utanríkisráðherra Ísrael segir að þeir njósni ekki um Bandaríkin. Ljóst er að samband ríkjanna hefur kulnað á undanförnum misserum. Sérfræðingar sem Guardian ræddi við segja að það að gögnum úr Hvíta húsinu hafi verið lekið til fjölmiðla sé út af fyrir sig dæmi um versnandi samband ríkjanna.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira