Menntuðum leikskólakennurum fækkar Atli Ísleifsson skrifar 24. september 2015 09:37 Í desember 2014 nutu 1.524 börn sérstaks stuðnings vegna fötlunar, félagslegra eða tilfinningalegra erfiðleika, 7,6% leikskólabarna. Vísir/vilhelm
Starfsfólk í leikskólum á Íslandi hefur aldrei verið fleira en í desember 2014. Störfuðu þá 6.019 manns í 5.289 stöðugildum, eða 3,3 prósent fleiri en árið áður. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar. 19.938 börn sóttu leikskóla á sama tíma og hafa þau aldrei verið fleiri. „Leikskólabörnum fjölgaði um 225 frá desember 2013, eða um 1,1%. Eins árs börnum fjölgaði mest, úr 34,0% í 41,2% af árganginum. Tæplega 86% barna á aldrinum 1-5 ára voru skráð í leikskóla og hefur það hlutfall ekki verið hærra.Börnum sem njóta sérstaks stuðnings fjölgar milli áraÍ desember 2014 nutu 1.524 börn sérstaks stuðnings vegna fötlunar, félagslegra eða tilfinningalegra erfiðleika, 7,6% leikskólabarna. Þetta er fjölgun um 324 börn frá fyrra ári (27,0%). Aðeins einu sinni áður hefur hlutfall barna sem njóta stuðnings verið yfir 7% en það var árið 2009; 7,3%. Eins og undanfarin ár eru fleiri drengir í þessum hópi og nutu 1.031 drengur (68%) og 493 stúlkur (32%) stuðnings árið 2014.Börnum af erlendum uppruna fjölgar áframHagstofan hefur frá árinu 2001 skoðað ríkisfang leikskólabarna. Árið 2001 voru 159 börn í leikskólum landsins með erlent ríkisfang, 1,0% leikskólabarna en 1.234 í desember 2014, 6,2% leikskólabarna. Á sama tímabili hefur börnum með erlent móðurmál fjölgað úr 755 (4,8% leikskólabarna) í 2.197 (11,0%).Leikskólakennurum fækkar Þrátt fyrir að starfsmönnum leikskóla hafi fjölgað frá fyrra ári, fækkaði menntuðum leikskólakennurum um 124 (6,3%) frá desember 2013 og voru menntaðir leikskólakennarar 1.836 í desember 2014. Athygli vekur að leikskólakennurum á fertugsaldri hefur fækkað um 160 síðustu fimm ár. Leikskólakennarar voru 33,3% starfsfólks við uppeldi og menntun leikskólabarna í desember 2014 en 36,8% árið áður. Starfsfólki við stuðning fjölgaði um 39 (9,5%), enda fjölgaði börnum sem nutu sérstaks stuðnings umtalsvert.Leikskólum fækkar Í desember 2014 voru 255 leikskólar starfandi á Íslandi og hafði þeim fækkað um einn frá árinu áður. Sveitarfélögin ráku 220 leikskóla en 35 leikskólar voru reknir af öðrum aðilum. Flestir voru leikskólarnir árið 2009, þegar 282 leikskólar störfuðu á landinu,“ segir í fréttinni.
Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira