Schoop: Langaði svo mikið að vinna að ég gleymdi þreytunni Ingvi Þór Sæmundsson á Alvogen-vellinum skrifar 9. júlí 2015 23:02 Schoop átti frábæran leik í kvöld. vísir/andri marinó "
Ég held það, fyrst við getum spilað svona einum færri," sagði Jacob Schoop eftir sigur KR á Cork City í kvöld, aðspurður hvort KR-ingar hefðu átt skilið að fara áfram í næstu umferð. Daninn knái átti frábæran leik í kvöld og skoraði sigurmark KR á níundu mínútu framlengingarinnar. Hann var ánægður með frammistöðu liðsins í kvöld en KR lék allan seinni hálfleikinn og framlenginguna einum færri eftir að Skúli Jón Friðgeirsson var rekinn út af undir lok fyrri hálfleiks. "Við vorum miklu meira með boltann og utan að frá leit örugglega út fyrir að það væri jafnt í liðum. Við héldum áfram að spila og reyndum að koma með fyrirgjafir sem okkur fannst skapa hættu. Við skoruðum tvö mörk og skölluðum auk þess tvisvar í slána. "Við sýndum frábæra liðsheild og fengum góðan stuðning úr stúkunni. Ég held að þetta hafi verið sanngjarnt," sagði Schoop en af hverju gekk KR-ingum illa að opna írsku vörnina í fyrri hálfleiknum? "Þeir lágu aftar en við bjuggumst við og það var lítið pláss til að vinna í milli varnar og miðju. Við leystum þetta vandamál í seinni hálfleik. Þetta var frábær frammistaða," sagði Schoop sem átti nóg eftir þegar hann tók mikinn sprett á 99. mínútu sem leiddi til sigurmarksins. "Maður finnur einhverja aukaorku einhvers staðar. Það er erfitt að útskýra það. Mig langaði svo mikið að vinna leikinn að ég gleymdi þreytunni á þessari stundu." Schoop náði merkilegum áfanga í kvöld en hann skoraði í sínum fyrsta Evrópuleik fyrir KR á Alvogen-vellinum. Hann skoraði einnig í sínum fyrsta deildar- og bikarleik á þessum velli. Daninn segir þetta skemmtilega tölfræði. "Vonandi skora ég líka í fyrsta Meistaradeildarleiknum á næsta ári," sagði Schoop hlæjandi að lokum.
Fótbolti Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fleiri fréttir Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Sjá meira