65 ára þýsk kona eignast fjórbura Atli Ísleifsson skrifar 23. maí 2015 10:53 Raunigk, sem á fyrir þrettán börn og sjö barnabörn, er elsta kona heims til að eignast fjórbura. Myndin er tekin 2005. Vísir/EPA
65 ára gömul þýsk kona hefur eignast fjórbura eftir að hafa gengist undir tæknisæðingu. Þýska sjónvarpsstöðin RTL greinir frá því að Annegret Raunigk hafi eignast þrjá drengi og eina stúlku, en börnin voru tekin með keisaraskurði á sjúkrahúsi í Berlín á þriðjudag.Í frétt BBC segir að Raunigk hafi verið gengin 26 vikur og að góðar líkur séu á að börnin lifi af. Raunigk, sem á fyrir þrettán börn og sjö barnabörn, er elsta kona heims til að eignast fjórbura.Tíu ára dóttir hennar vildi lítið systkini Raunigk er einstæð og segist hafa reynt að eignast annað barn þegar yngsta dóttir hennar, sem er tíu ára, sagðist vilja lítið systkini. Málið hefur vakið mikla umræðu í Þýskalandi, en Raunigk gekkst undir tæknisæðingarmeðferð í Úkraínu.Sama um skoðanir annarra Þegar Raunigk ræddi við fjölmiðla á meðgöngunni sagði hún að allir ættu að fá að lifa því lífi sem þeir sjálfir kjósa. Sagðist hún gera ráð fyrir að hún yrði áfram hraust og gæti vel séð um og séð fyrir börnunum. Hún sagðist ekki skipta sér af skoðunum annarra. Raunigk starfar sem grunnskólakennari. Hún er þó ekki elsta konan til að fæða barn, en opinbert „met“ er á hendi hinnar spænsku Maria del Carmen Bousada Lara sem bar tvíbura árið 2006, þá 66 ára að aldri. Aðrir segja þó hina indversku Omkari Panwar hafa gengið með tvíbura á Indlandi árið 2008, þá sjötug að aldri.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira