Enn óljóst hvenær Alþingi lýkur störfum Heimir Már Pétursson skrifar 23. júní 2015 13:05
Ekki sér fyrir endann á þingstörfum vegna ósamkomulags um hvaða málum eigi að ljúka áður en þing fer í sumarleyfi en þrjátíu mál eru á dagskrá Alþingis í dag. Þingflokksformaður Vinstri grænna segir met hafa verið slegið í lengd þingstarfa inn í sumarið. Tæpur mánuður er liðinn frá því Alþingi átti að ljúka störfum og starfsáætlun þess rann sitt skeið. Svandís Svavarsdóttir þingflokksformaður Vinstri grænna segir ekki sjá fyrir endann á þingstörfum í sumar. „Við erum komin núna inn í fjórðu viku framyfir starfsáætlun þingsins. Það virðist sem stjórnarflokkunum sé kki í lófa lagið að leggja fram neina raunhæfa áætlun um þinglok. Ég held að við förum að nálgast met hvað varðar ráðleysi í þeim efnum. Í raun og veru virðist þinginu vera stjórnað, eða ekki stjórnað, af ríkisstjórninni. Af forsætisráðherra fyrst og fremst sem er nú eins og kunnug er ekkert lagið að stýra hlutum farsællega,“ segir Svandís. Svandís segir að þótt þing sitji stundum inn í sumarið á kosningaári sé ákaflega sjaldgæft að það starfi svo lengi að loknu vorþingi og það hafi raunar ekki gerst í marga áratugi. Til að ljúka megi þingstörfum þurfi stjórnarflokkarnir að greina frá því vilja sínum. En 30 mál eru á dagskrá þingfundar í dag. „Og að sumu leyti virðist manni það vera þannig að ekki einu sinni stjórnarflokkarnir sjálfir séu sammála um hvað sé mikilvægt og hvað ekki. Við erum augljóslega komin svo langt fram yfir allan eðlilegan tíma að stjórnarflokkarnir verða að fara að skera það verulega niður. Því ef við ætlum að ræða öll mál sem eru inni í nefndum og svo framvegis og líka mál sem eru í ágreiningu, þá dugar okkur ekki einu sinni sumarið til,“ segir Svandís. Henni virðist málið einkum vefjast fyrir Framsóknarmönnum en Sjálfstæðismönnum hafi gengið betur að skigreina sín forgangsmál. Stóru deilumálin eru breytingatillögur við annars vegar makrílfrumvarp sjávarútvegsráðherra og við þingsályktunartillögu umhverfisráðherra um virkjanakosti. Stjórnarandstaðan vill fresta makrílmálinu í heild sinni til haustsins og að eingöngu verði afgreiddur einn virkjanakostur sem var í upprunalegri þingsályktunartillögu umhverfisráðherra.Heldur þú að það gæti jafnvel farið þannig að það grói saman með yfirstandandi þingi og haustþinginu? „Það væri þá enn eitt metið sem þessi ríkisstjórn setur,“ segir Svandís Svavarsdóttir.
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira