Uppreisnarmenn ná valdi á fleiri borgum jóhann óli eiðsson skrifar 23. mars 2015 07:45 Meðlimir hersveita sem berjast enn fyrir al Hadi. fréttablaðið/ap
Þriðja stærsta borg Jemens, Taiz, er fallin í hendur Houthi-uppreisnarmanna. Íbúar borgarinnar þustu út á götur til að mótmæla og féll einn í valinn eftir að hafa fengið táragashylki í sig. Höfuðborgin San'a hefur verið á valdi uppreisnarmannanna síðan í febrúar eftir að þeir steyptu forsetanum Abdrabbuh Mansour al Hadi af stóli. Hann flúði suður á bóginn til borgarinnar Aden og hefur hafst þar við. Ástandið í landinu er uggvænlegt en auk Houthi-samtakanna njóta Íslamska ríkið og al-Kaída sívaxandi stuðnings. Bandaríkin hafa tilkynnt að hermenn þeirra muni snúa heim frá landinu sökum ástandsins þar. Hersveitir uppreisnarmannanna stefna nú suður í átt að Aden og telja margir aðeins tímaspursmál hvenær fleiri borgir falla í þeirra hendur. Meðlimir samtakanna eru flestir síja-múslimar úr norðurhluta landsins. Eftir að þeir steyptu al Hadi af stóli hefur fimm manna nefnd verið í forsæti landsins. Súnní-múslimar sunnar í landinu neita hins vegar að viðurkenna stjórnina. Forsetinn sakar Írana um að styðja við bakið á samtökunum. Írönsk stjórnvöld sverja allar slíkar tengingar af sér. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun koma saman á næstu dögum til að ræða ástandið í landinu og hvað sé hægt að taka til bragðs.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira