Fréttamenn sakaðir um landráð vegna uppljóstrana Guðsteinn Bjarnason skrifar 5. ágúst 2015 07:00 Markus Beckedahl og Andre Meister, tveir af helstu forsprökkum fréttavefsins Netzpolitik.org, á mótmælafundi í Berlín um helgina. vísir/epa
Aðalsaksóknari þýska ríkisins, Harald Range, var í gær rekinn af Heiki Maas dómsmálaráðherra. Range hafði frábeðið sér öll afskipti stjórnmálamanna af málaferlum gegn fréttavefnum Netzpolitik.org, sem sérhæfir sig í umfjöllun um netfrelsi og hefur fengið verðlaun fyrir starfsemi sína. Saksóknaraembættið hefur ákært stjórnendur vefsins fyrir landráð. Uppsögn Range tók gildi strax í gær. Í apríl síðastliðnum birti vefurinn upplýsingar úr leyniskjölum um starfsemi nýstofnaðrar deildar innan þýsku leyniþjónustunnar, en sú deild fær það hlutverk að sinna víðtæku eftirliti með netinu. Í kjölfarið kærði leyniþjónustan fréttavefinn fyrir landráð og saksóknarinn brást við með því að höfða mál á hendur stjórnendum síðunnar. Leyniskjölin, sem fréttavefurinn birti, hafi verið ríkisleyndarmál og birting þeirra varði því við lög um landráð. Í Þýskalandi hefur verið efnt til mótmæla gegn ákærunni og áhrifamiklir þýskir stjórnmálamenn, þar á meðal bæði Angela Merkel kanslari og Heiko Maas dómsmálaráðherra, hafa komið fréttasíðunni til varnar. Maas sagðist efast um að skjölin innihéldu svo alvarleg leyndarmál að birting þeirra stofnaði öryggi landsins í hættu. Þá sagði hann ekki síður mikilvægt að koma fjölmiðlafrelsinu til varnar. Á mánudag sagði talsmaður þýsku stjórnarinnar að dómsmálaráðherrann hefði í þessu máli fullan stuðning Merkel kanslara. Þá hefur Thomas de Maiziere innanríkisráðherra tekið undir með Maas og lýst efasemdum um réttmæti landráðaákærunnar. Saksóknarinn fyrrverandi segir þessi afskipti stjórnmálamanna vera ólíðandi. Þeir séu að reyna að hafa áhrif á rannsókn málsins vegna þess að niðurstöðurnar gætu orðið óþægilegar. „Við látum ekki þagga niður í okkur,“ segir hins vegar Andre Meister, bloggari á Netzpolitik.org og einn af stofnendum fréttasíðunnar. Hann segist líta á ákæruna sem beina árás á fjölmiðlafrelsið: „Það er langt síðan gengið hefur verið jafn hart fram gegn blaðamönnum og heimildarmönnum þeirra hér í Þýskalandi.“
Mest lesið Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Erlent Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent Erik Menendez fær ekki reynslulausn Erlent Áfall fyrir RIFF Innlent Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Innlent Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Erlent Fleiri fréttir Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu Sjá meira