Innlent

Þúsundir kvenna fögnuðu

Snærós Sindradóttir skrifar
 Stúlknakórar og kvennakórar sungu á milli ræðuhalda á Austurvelli í gær. Athöfnin var öll hin hátíðlegasta.
Stúlknakórar og kvennakórar sungu á milli ræðuhalda á Austurvelli í gær. Athöfnin var öll hin hátíðlegasta. Vísir/Stefán
Öllu var til tjaldað á Austurvelli í gær þegar hundrað ára afmæli kosningaréttar kvenna var fagnað.

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, hélt ræðu af svölum Alþingishússins. Hún fór stuttlega yfir sögu kvenna við stjórn landsins og hvað áunnist hefur í jafnréttisbaráttunni.

Þá sagði hún að enn væri langt í land til að fullkomnu jafnrétti væri náð. Samskipti kynjanna væru oft lituð af andlegu og líkamlegu ofbeldi og ofsóknir á netinu væru orðnar daglegt brauð. „Og við sem höfum stært okkur af því að vera friðsöm þjóð,“ klykkti Vigdís svo út með.

Mörg þúsund manns, þá aðallega konur, voru samankomin til að hlýða á dagskrána á Austurvelli og sjá afhjúpun á styttu af Ingibjörgu H. Bjarnason sem reist hefur verið fyrir utan skála Alþingis.

Þó nokkur fjöldi var jafnframt kominn á Austurvöll til að mótmæla launamun kynjanna og ofbeldi gegn konum. Hópurinn var merktur gulu og appelsínugulu til aðgreiningar. Þau sem merkt voru appelsínugulu vildu með litnum vekja athygli á því að þau hefðu orðið fyrir kynferðisofbeldi. Mótmælin koma í kjölfarið á

Beauty Tips-byltingunni svokölluðu, þar sem margar konur stigu fram og lýstu ofbeldi sem þær hefðu orðið fyrir. Mótmælin voru þögul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×