Halda upp á fimm ára afmæli í fjórum borgum Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 11. júní 2015 12:30 Dóra og Árni eru nú á fullu við að undirbúa afmælishátíðina. Vísir/Vilhelm
Listahátíðin Festisvall fagnar á fimm ára starfsafmæli í sumar í fjórum Evrópuborgum með tónleikum og myndlistarsýningu. „Þetta átti að vera voðalega einfalt allt saman, við ákváðum að gera plakatasýningu af því að það væri einfalt og þægilegt að ferðast með,“ segir Dóra Hrund Gísladóttir myndlistarkona og annar stjórnandi Festisvalls glöð í bragði. Umfang afmælishátíðarinnar óx því og verður boðið upp á tónleika og gjörninga auk myndlistarsýninga. „Það eru allir búnir að vera svo til í þetta og við erum búin að fá svo góðar viðtökur, þess vegna er þetta búið að stækka svona mikið,“ segir hún en undirbúningur fyrir afmælishátíðina, sem nefnist Festisvall Fünf, hófst í desember síðastliðnum en Festisvall hóf göngu sína árið 2010 í Hjartagarðinum og var stofnuð af myndlistarmanninum Árna Má Erlingssyni. Þema hátíðarinnar í ár er matur og munu gjörningar, uppákomur og tónleikar endurspegla það á ólíkan máta. Festisvall Fünf mun ferðast frá Reykjavík til Leipzig, Berlínar og Amsterdam og taka tuttugu íslenskir, þýskir og hollenskir listamenn þátt í hátíðinni. Dóra segir skemmtilegt að sýna í fjórum ólíkum rýmum. „Við erum að fara með sömu sýninguna í fjögur rými en hún er í rosalega mismunandi samhengi á hverjum stað þó þetta séu sömu verkin.“ Í Reykjavík verður sýningin sett upp þann 22. ágúst í almenningsrými á Hverfisgötu í samstarfi við Kex Hostel á Menningarnótt. Tónleikarnir fara fram daginn áður í Iðnó þar sem fram koma Berndsen, Hermigervill, Good Moon Deer, M-Band og East of My Youth. Festisvall stendur nú fyrir söfnun á Karolinafund vegna afmælishátíðarinnar.
Mest lesið Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Lífið Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Lífið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Lífið Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Tónlist „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Fleiri fréttir „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Sjá meira