Yfirmaður fíkniefnalögreglu stýrði smyglhring Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 22. maí 2015 12:00 Saksóknarar krefjast 13 ára fangelsisdóms yfir yfirmanni fíkniefnadeildar finnsku lögreglunnar.
Það voru áhyggjur fyrrverandi yfirmanns fíkniefnadeildar finnsku lögreglunnar af blómabeði í garði hans sem leiddu til þess að þar fundust 65 þúsund evrur í reiðufé. Yfirmaðurinn, Jari Aarnio, er grunaður um að hafa stýrt smyglhring sem á árunum 2010 til 2012 smygluðu 900 kílóum af hassi til Finnlands við átta mismunandi tilfelli. Talið er að hagnaðurinn hafi numið 1,8 milljónum evra. Hitna fór undir Aarnio í desember 2011 þegar smygla átti tunnu til Finnlands með 141 kílói af hassi frá Hollandi. Hollenska lögreglan varaði kollega sína í Finnlandi við til að þeir gætu handtekið þá sem tækju á móti tunnunni. Aarnio er sagður hafa beitt ýmsum brögðum til að villa um fyrir samstarfsmönnum sínum til að grunur beindist ekki að honum. Sá hann meðal annars til þess að grunur félli á saklausan mann. Við rannsókn málsins þótti ljóst að leki væri innan lögreglunnar og var hann rakinn til yfirmannsins. Þegar hann var handtekinn í nóvember 2013 kom í ljós að hann gat ekki gert grein fyrir hvaðan reiðuféð var komið sem hann greiddi með fyrir bíla og byggingarefni í hús sitt. Leit í einbýlishúsi Aarnio og sumarbústað bar ekki árangur. Yfirlögregluþjónn sem hleraði síma eiginkonu Aarnios fannst skilaboðin sem lögreglumaður í fíkniefnadeildinni bar eiginkonunni eftir að hann hafði heimsótt hann í gæsluvarðhaldið einkennileg. Þau voru á þann veg að mikilvægt væri að setja spýtu yfir beð í garðinum, einkum hægra hornið. Það var samt ekki fyrr en í maí þegar frost var farið úr jörðu að fata með 65 þúsund evrum fannst. Aarnio neitar öllum sakargiftum og segir einhvern hafa grafið niður féð til að koma sök á hann. Lögreglan segir ekkert hafa verið grafið niður frá því í nóvember 2013 til 2014 þegar garðurinn var vaktaður með myndavélum.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira