Missir sína sérstöðu með aldrinum Gunnar Leó Pálsson skrifar 16. maí 2015 13:30 Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, stendur á miklum tímamótum og fagnar þrjátíu ára afmæli sínu í dag. vísir/daníel „
Að sjálfsögðu verður svaka partí í kvöld,“ segir rapparinn, uppistandarinn og gleðigjafinn Halldór Laxness Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA. Hann stendur á miklum tímamótum í dag því hann fagnar þrjátíu ára afmæli sínu og ætlar að gera það með glæsibrag. „Partíið verður fyrir velunnara og þar verð ég með þemað vestræn gildi,“ segir Dóri. Þema partísins, hin vestrænu gildi, kom til þegar hann var steggjaður. „Steggjunin mín endaði í partíi hjá foreldrum mínum í Mosfellsdalnum. Við stálumst svo í sundlaugina í Gljúfrasteini. Þetta var svolítið eins og þegar bandarísku hermennirnir eru að rífa niður stytturnar í bardögum og fóru strákarnir í lauginni því að hrópa vestræn gildi, vestræn gildi,“ útskýrir Dóri spurður út í þemað. Þá verður boðið upp á alvöru vestrænar veitingar í veislunni. Dóri segist þó finna fyrir því að hann sé að eldast. „Ég finn að ég er að missa gífurlega mikið. Ég hef alltaf átt eldri vini, sem eru yfirleitt á bilinu tveimur til fimm árum eldri en ég. Í þá daga gat ég komið á óvart og menn sögðu oft, þú ert ekki eldri en þetta. Nú er það búið, ég er bara þrítugur gaur með tvö börn og er að missa alla sérstöðu,“ segir Dóri léttur í lundu og hlær. Hann er þó bjartsýnn þótt hann sé kominn á fertugsaldurinn og er með sín markmið klár. „Ég hef verið að grenna mig undanfarið og ætla að taka enn meira á því núna. Ég ætla að vera orðinn talsvert spengilegri í haust.“ Dóri stendur þó á tímamótum á öðrum sviðum einnig, því hann er að flytja norður á Akureyri í haust. „Ég er að fara að leika í leikriti fyrir norðan sem við Saga Garðarsdóttir erum að skrifa,“ segir Dóri. Hann segist vera spenntur fyrir höfuðstað Norðurlands. „Ég var að skemmta þarna með Mið-Íslandi um daginn og mér líst rosalega vel á fólkið og bæinn. Þetta er auðvitað Kaupmannahöfn norðursins,“ bætir Dóri við glaður í bragði.
Mest lesið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Laufey á landinu Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Fleiri fréttir Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Sjá meira