Engin samstaða um stríðslokaathafnir Guðsteinn Bjarnason skrifar 8. maí 2015 14:30 Rússar sýna mátt sinn. Hermenn æfa sig fyrir hátíðarhöldin á Rauða torginu á morgun. Vísir/EPA
Rauða torgið í Moskvu var í gær undirlagt af hermönnum að æfa sig fyrir hersýninguna miklu, sem efnt verður til á morgun í tilefni þess að sjötíu ár eru liðin frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Sýningin verður ein sú allra stærsta sem Rússar hafa haldið til þessa, með skriðdrekum og þungavopnum af nýjustu gerð til að sýna hvers rússneski herinn er megnugur. Rússar minnast stríðslokanna jafnan 9. maí, degi á eftir flestum öðrum ríkjum Evrópu sem miða við 8. maí. Æðstu yfirmenn þýska hersins undirrituðu skilyrðislausa uppgjöf sína reyndar þann 7. maí í borginni Reims í Frakklandi, en almennt frétti fólk í Evrópu og Bandaríkjunum ekki af því fyrr en morguninn eftir og því var stríðslokum fagnað þann 8. maí. Bardögum Þjóðverja og Sovétmanna í Berlín lauk þó ekki fyrr en 8. maí með formlegri undirritun uppgjafar þýska hersins þar í borg. Vegna tímamismunar var þá kominn 9. maí í Moskvu og því fagna Rússar stríðslokum jafnan degi síðar en aðrir, þann 9. maí.Í spilaranum hér fyrir neðan má hlýða á útvarpsfrétt Ríkisútvarpsins þar sem greint var frá stríðslokum í maí 1945. Uppgjöf undirrituð Alfred Jodl, æðsti yfirmaður þýska hersins, situr þarna fyrir miðju og undirritar uppgjöf Þjóðverja í Reims 7. maí árið 1945.fréttablaðið/EPAPólverjar ákváðu hins vegar þetta árið að taka forskot á sæluna og minntust stríðslokanna strax í gær, þegar rétt 70 ár voru liðin frá því uppgjafarskjalið var undirritað í Reims. Ban ki Moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og Donald Tusk, forseti ráðherraráðs Evrópusambandsins, tóku þátt í hátíðarhöldum í Póllandi af þessu tilefni, en fáir leiðtogar frá Vestur-Evrópu létu sjá sig þótt þeim hafi verið boðið. Leiðtogar Evrópuríkja ætla heldur ekki til Moskvu á morgun að fagna með Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Lengi vel voru minningarathafnir um stríðslokin notaðar til þess að rifja upp samstöðu bandamanna, en þetta árið varpar hernaðarbrölt Rússa í Úkraínu skugga á þessar athafnir. Joachim Gauck, forseti Þýskalands, hélt hins vegar ræðu á miðvikudaginn í Holte-Stukenbrock-höllinni í Þýskalandi, þar sem nasistar höfðu sovéska stríðsfanga í haldi. Tugir þúsunda þeirra voru drepnir. „Þetta er einn þeirra staða, þar sem við skynjum sterkt og með sársauka að hinir látnu skuldbinda þá sem lifa,“ sagði Gauck við þetta tækifæri. Í Bandaríkjunum verður svo gömlum herflugvélum frá tímum seinni heimsstyrjaldarinnar flogið yfir höfuðborgina Washington í dag, í tilefni dagsins.
Mest lesið 51 prósent sé nóg Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Innlent Fleiri fréttir „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Sjá meira