Útlendingar ofsóttir í borgum Suður-Afríku Guðsteinn Bjarnason skrifar 18. apríl 2015 14:00 Fyrir utan Jeppies Hostels í Jóhannesarborg stóð þessi kona, þakin sóti, og hrópaði ókvæðisorð að útlendingum sem búa þar.nordicphotos/AFP
Að minnsta kosti sex manns hafa látið lífið í ofbeldisbylgju gegn útlendingum í Suður-Afríku undanfarna daga. Ofsóknirnar hafa vakið reiði nágrannaríkjanna, en suðurafrísk stjórnvöld hafa óskað eftir aðstoð frá öðrum Afríkuríkjum við að draga úr spennunni. Víða um land hefur múgur manns farið um og hrakið burt alla útlendinga. Reiðin hefur ekki síst beinst að verslunum og öðrum fyrirtækjum í eigu útlendinga. Margir hafa flúið að heiman og þora ekki að snúa til baka. Óeirðirnar hófust í hafnarborginni Durban en undanfarna daga hafa þær verið verstar í Jóhannesarborg. Tugir manna hafa verið handteknir. Nokkur hundruð manns hafa leitað skjóls á lögreglustöð í hverfinu Jeppestown. Gwede Mantashe, framkvæmdastjóri Afríska þjóðarráðsins, segir allt stefna í að koma þurfi upp flóttamannabúðum í landinu. Talið er að í Suður-Afríku búi að minnsta kosti tvær milljónir innflytjenda, hugsanlega allt að fimm milljónir. Þetta eru á bilinu 4 til 10 prósent af rúmlega 50 milljónum íbúa landsins alls. Innflytjendurnir eru sakaðir um að taka störf frá heimamönnum, koma með fíkniefni inn í landið og jafnvel ætla að taka þar öll völd. Ofbeldishrinan hófst um miðjan síðasta mánuð eftir að Goodwill Zwelithini, konungur Súlúmanna, hafði ávarpað fjölmennan útifund í KwaZulu-Natal þar sem hann sagði nauðsynlegt að útlendingar færu úr landi. „Við skorum á alla útlendinga að pakka saman föggum sínum og hafa sig á brott,“ sagði Zwelithini á fjölmennum fundi í KwaZulu-Natal, yfirráðasvæði Súlúfólksins, um miðjan síðasta mánuð. Í byrjun apríl tók svo Edward Zuma, elsti sonur Jacobs Zuma forsta, undir þessi ummæli: „Við verðum að gera okkur grein fyrir því að í þessu landi sitjum við á þeirri tímasprengju að þeir taki yfir landið,“ er haft eftir honum á fréttasíðum suðurafríska dagblaðsins Mail and Guardian. Faðir hans, Zuma forseti, hvetur fólk hins vegar til að halda ró sinni og láta af þessu ofbeldi. Fyrir sjö árum reið yfir landið sams konar bylgja ofsókna gegn útlendingum. Ofbeldið þá kostaði tugi manna lífið.
Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira