Mjótt á mununum Guðsteinn Bjarnason skrifar 11. apríl 2015 13:00 Ed Miliband, hægra megin á myndinni, ásamt Jim Murphy, leiðtoga flokksins í Skotlandi þar sem hið sterka vígi virðist fallið.
Allt bendir til þess að minnihlutastjórn verði áfram við völd í Bretlandi á næsta kjörtímabili, annað kjörtímabilið í röð. Íhaldsflokkur Davids Cameron virðist þó ekki líklegur til að vera í forystu áfram, en Verkamannaflokkurinn er ekki mikið betur staddur. Þar munar ekki síst um að fylgi Verkamannaflokksins í Skotlandi er hrunið, með þeim afleiðingum að Nicola Sturgeon, leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, gæti komist í lykilstöðu við stjórnarmyndun eftir kosningar.Leiðtogar Íhaldsflokksins, David Cameron forsætisráðherra og George Osborne fjármálaráðherra, virðast eiga afar takmarkaða möguleika á því að halda ráðherrasætum sínum eftir kosningarnar.Nærri helmingur Skota segist ætla að kjósa flokk hennar, en aðeins 25 prósent Verkamannaflokkinn, sem er snautlegt miðað við yfirburðastöðu Verkamannaflokksins í Skotlandi allt fram á síðustu mánuði. Hún hefur hins vegar harðlega gagnrýnt áform Eds Miliband um frekari niðurskurð, einkum á heilbrigðisþjónustu og heitir kjósendum því að tryggja að ekkert verði úr þeim áformum verði hún kölluð til liðsinnis við stjórnarmyndun.Nicola Sturgeon er vinsæl í Skotlandi. Hún tók við af Alex Salmond sem leiðtogi Skoska þjóðarflokksins eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna síðasta haust, þar sem Skotar höfnuðu sjálfstæði.Bretar virðast svo almennt ekkert sérlega spenntir fyrir loforði Camerons um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu á fyrri helmingi næsta kjörtímabils um úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu. Að minnsta kosti er þetta loforð ekki að tryggja Íhaldsflokknum neitt stórfylgi. Þessu lofaði hann í ræðu sinni í janúar árið 2013, en fyrst ætlaði hann að semja við Evrópusambandið um breytingar á aðildarskilyrðum Bretlands. Síðan verði þessi nýi samningur borinn undir kjósendur í Bretlandi, og verði honum hafnað þá þýði það brottgöngu úr ESB.Nick Clegg, leiðtogi Frjálslynda flokksins, virðist ekki ætla að ríða feitum hesti frá kosningunum, eftir eitt kjörtímabil í stjórn með Íhaldsflokki Davids Cameron.nordicphotos/AFP
Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Innlent Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Innlent Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Innlent Fleiri fréttir Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Sjá meira