Ekki allir sáttir við kjarnorkusamning 4. apríl 2015 12:00 Samningahópurinn Lotan í Sviss þótti ganga vel upp en enn á eftir að fullklára samninga. NORDICPHOTOS/AFP
Mohammad Javad Zarif „Við létum frá okkur vel söðlaðan hest í skiptum fyrir lélega múlbindingu,“ sagði Hossein Shariatmadari, einn nánasti ráðgjafi Ayatollah Ali Khameini, æðsta klerks Írans, um kjarnorkusamkomulag Írana við fastaþjóðir Sameinuðu þjóðanna, Þýskaland og Evrópusambandið. Ummælin þykja vera einkennandi fyrir viðbrögð pólitískra harðlínumanna í Íran. Samninganefndirnar náðu saman á fimmtudaginn um að takmarka getu Írana til auðgunar úrans. Þegar utanríkisráðherra Írans, Mohammad Javad Zarif, sneri heim úr samningalotunni í Sviss var hann hylltur sem þjóðhetja af hófsömum öflum í Íran en líkt og fram hefur komið hafa harðlínumenn þó tekið illa í samkomulagið. Það þótti lykilatriði að Hassan Rouhani, forseti Írans, og Khameini, æðsti klerkur, höfðu áður lagt blessun sína yfir samningaferlið. Rouhani hefur þegar tjáð sig á jákvæðum nótum um niðurstöðu samninganna en lokaafstaða Khameinis mun þykja skipta sköpum þar sem hann mun hafa lokaorðið fyrir hönd Írana.Benjamín NetanjahúSamkomulagið hindrar mjög mikið getu Írana til að auðga úran en gegn því munu Bandaríkin og Evrópusambandið slaka á viðskiptahindrunum við Íran. Samkomulagið í Sviss er þó í raun ekki lokasamkomulag heldur einungis drög að samningsramma sem stefnt er á að fullklára fyrir 30. júní. Þó svo að samningamenn hafi farið almennt ánægðir frá borðinu eru fleiri neikvæðar raddir á kreiki. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir ríkisstjórn sína alfarið á móti samkomulaginu en að hans mati þarf að gera út af við kjarnorkuáætlanir Írana fyrir fullt og allt. „Samningurinn stöðvar ekki vegferð Írana í átt að kjarnorkusprengjunni,“ sagði Netanjahú á blaðamannafundi í gær. „Samkomulagið leggur veg fyrir Írana í átt að kjarnorkusprengjunni, sem gæti orðið neisti sem gæti hrundið af stað kjarnorkuvopnakapphlaupi um öll Mið-Austurlönd sem yki líkurnar á hrikalegu stríði,“ sagði Netanjahú. Samningalotan í Sviss er talin vera stórt skref fram á við í samskiptum Írans og Bandaríkjanna. „Það eru 35 ár síðan við ræddum við Írana með jafn hreinskiptum hætti,“ sagði John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í samtali við CNN. Þó að Kerry fagni þessu skrefi ítrekar hann að enn eigi eftir að ljúka samkomulaginu endanlega og að ef Íranar virða ekki samkomulagið sé auðvelt að koma viðskiptaþvingunum aftur á.
Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Innlent Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Innlent Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Innlent Fleiri fréttir Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sjá meira