Gisting á Íslandi vonbrigði fyrir vellauðuga Kínverja Garðar Örn Úlfarsson skrifar 14. mars 2015 12:00 Fyrirmynd IET fyrir lúxusgistingu í Grímsnesi er glæsibyggingar í Úthlíð sem ekki munu lengur anna eftirspurn. Fréttablaðið/Ernir
Hildur Jóna Gunnarsdóttir hjá Iceland Europe Travel segir sterkefnaða Asíubúa hafa mikinn áhuga á ferðalögum til Íslands en telji gistingu hér engan veginn standast samanburð við það sem bjóðist annars staðar í Evrópu – hvað þá Asíu. Þetta kemur fram í bréfi Hildar til Grímsnes- og Grafningshrepps þar sem hún spyrst fyrir um möguleika þess að stækka tæplega 500 fermetra fokhelt sumarhús við Miðengi í Grímsnesi úr fjórum svefnherbergjum í átta. „Við munum ekki fara af stað með Miðengið fyrr en við getum haft vissu fyrir að þar verði hægt að byggja upp fimm stjörnu aðstöðu og til þess að svo megi verða þurfum við að hafa sveitarfélagið hliðhollt okkar hugmyndum,“ skrifar Hildur sveitarstjórninni. Meðal forsvarsmanna Iceland Europe Travel (IET) er Jónína Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra. Að sögn Hildar er IET í samstarfi við kínverskt lífsstílsfyrirtæki. Meðlimir þess séu tilbúnir að greiða hálfa milljón króna á dag á ferðalögum. Íslandskynning IET hafi vakið mikla athygli á afmælishátíð í Peking þar sem sendiherra Íslands hafi verið viðstaddur aðalkvöldverð. „Það er óborganlegt fyrir ykkur og Ísland að komast að með svona eftirminnilegum hætti meðal ríkustu Kínverjanna!“ vitnar Hildur í kveðju sem hún fékk frá Stefáni Skjaldarsyni sendiherra. Hildur segir að IET hafi í fyrrahaust boðið útsendurum frá Asíu til Íslands. „Það er skemmst frá því að segja að viðbrögðin við fegurðinni og birtunni í náttúrunni, ferskleiki matarins og hlýleiki fólksins heillaði þá algerlega. Hins vegar urðu þeir fyrir miklum vonbrigðum með þá gistingu sem hér er boðið upp á,“ segir í bréfi Hildar sem kveður skjólstæðingum sínum finnast gisting í Úthlíð standa langt upp úr. Þar á Hildur við byggingar sem Jóhannes Stefánsson í Múlakaffi rekur. „Þar dvelja þeir ríku og stundum frægu sem hingað koma, nýlega var söngkonan Beyoncé þarna í nokkra daga, um áramótin var konungurinn frá Katar ásamt fylgarliði hjá honum í fimm daga,“ segir Hildur og á þar væntanlega við emírinn sjeik Tamim bin Hamad Al Thani. Í Úthlíð segir Hildur boðið upp á átta tveggja manna herbergi sem hvert kosti 250 þúsund krónur á sólarhring. „Þar er þyrlupallur, vínkjallari, heitir pottar og gufa og þjónar kallaðir til eftir þörfum.“ Hildur segir IET þegar komið með fyrirspurnir fyrir komandi sumar. „Til dæmis frá ferðaklúbbi sem er aðallega að taka fólk til Parísar, þar sem menn leigja meðal annars kastala og láta til dæmis loka fyrir sig La Fayette-verslunarmiðstöðinni til þess að kaupa alvöru merkjavöru,“ lýsir hún væntanlegum viðskiptavinum fyrir sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps. Ófullgerða húsið í Miðengi segir Hildur vera „gapandi minnismerki um góðærið“ en að staðsetningin sé einstök. „Það er mikil synd að þetta fallega hús sé ekki að vinna fyrir sér því húsið býður upp á gríðarlega möguleika,“ skrifar hún sveitarstjórninni, sem ekki varð við óskum hennar um stækkun hússins og aðrar framkvæmdir: „Ekki er fallist á byggingu þyrlupalls inni í miðju frístundahúsahverfi vegna mögulegs ónæðis fyrir nágranna.“ Húsið sem um ræðir var byggt sem frístundahús fyrir einkaaðila og hefur staðið fokhelt og óselt frá því í hruninu.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Drengurinn kominn heim til sín Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Sjá meira