Reglum ekki ávallt fylgt við mat inn á hjúkrunarheimili viktoría hermannsdóttir skrifar 11. mars 2015 07:00 Grunur hefur verið um það að reglum um vistunarmat hafi ekki verið fylgt á öllum hjúkrunarheimilum á Austurlandi þegar valið er inn á hjúkrunarheimili.
Grunur hefur verið uppi um að ekki sé alltaf farið eftir reglum þegar valið er inn á hjúkrunarheimili á Austurlandi. Þetta staðfestir formaður vistunarmatsnefndar á Austurlandi. Þegar pláss losnar á hjúkrunarheimilum á lögum samkvæmt að láta vistunarmatsnefnd vita sem svo úthlutar plássi eftir því hvort viðkomandi er í mikilli eða lítilli þörf fyrir pláss. Í vistunarnefnd eru þrír aðilar sem skipaðir eru af Landlækni auk starfsmanns nefndarinnar. Á Austurlandi eru fimm hjúkrunarheimili fyrir aldraða, þrjú þeirra eru rekin af Heilbrigðisstofnun Austurlands en tvö af Fjarðabyggð en grunurinn snýr að þeim hjúkrunarheimilum sem Fjarðabyggð rekur.Rúnar Sigurður ReynissonSamkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur þetta meðal annars valdið því að aldraðir einstaklingar sem teljast útskriftarhæfir fá ekki pláss á því hjúkrunarheimili sem þeir hafa sótt um og þurft að vera á spítala í yfir ár, meðan aðrir í minni þörf fyrir pláss hafa komist inn á hjúkrunarheimilin. Heimildir Fréttablaðsins herma einnig að þá hafi ekki í öllum tilfellum verið óskað eftir mati nefndarinnar líkt og lög og reglur gera ráð fyrir. Rúnar Sigurður Reynisson, læknir á Seyðisfirði, tók við formennsku í Vistunarmatsnefndinni um áramót. Hann staðfestir að uppi hafi verið grunur um að reglunum hafi ekki alltaf verið fylgt, þess vegna hafi verið sent bréf til forstöðumanna hjúkrunarheimila til þess að ítreka að farið sé eftir reglunum. „Eftir að ég tók við formennsku þá höfum við verið að senda út ítrekun á þeim reglugerðum sem um þetta gilda og minna á að það þurfi að fara eftir þeim og taka inn sjúklinga samkvæmt þessum vistunarmatsnefndum,“ segir hann. Aðspurður um það hvers vegna bréfin hafi verið send segir hann: „Það var einhver kvittur um að það hafi ekki alltaf verið farið fullkomlega eftir þessu. Ég get ekki nefnt ákveðin dæmi en það hafa verið svona spurningar um það. Við erum búin að fara nokkuð vel yfir þetta og ég veit ekki annað en að minnsta kosti sé þetta komið í það horf sem það á að vera í. Núna er það alveg skýrt að það er enginn tekinn inn á hjúkrunarheimili án þess að hafa samband við starfsmann nefndarinnar og fá nöfn þeirra tveggja sem næstir eru í forgangsröðinni inn.“ Landlæknir sendi hjúkrunarheimilum á Austurlandi á síðasta ári bréf þar sem minnt var á þetta fyrirkomulag og að því bæri að fylgja. Sigríður Egilsdóttir hjá Landlækni segir að ekki hafi borist formleg kvörtun vegna þessa til embættisins. „Það voru einhver áhöld um það en ég hugsa það hafi bara verið kunnáttuleysi, þess vegna var sent bréf til þeirra þar sem þeim var bent á að fara eftir reglugerðinni. Það hefur ekki borist til okkar nein formleg kvörtun. Við sendum alltaf við og við svona ábendingarbréf þar sem við erum að minna fólk á, því að í amstrinu gleymist eitthvað en við fylgjumst með því þannig en svo erum við í góðu sambandi við nefndirnar á hverjum stað.“ Rúnar segir að ekki sé hægt að segja með vissu að þessu hafi verið svona háttað í einhverjum tilfellum þó að grunur hafi leikið á því. „Hafi orðið misbrestur á, þá er búið að ítreka og tryggja að það verði ekki aftur,“ segir hann.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Sjá meira