Tuttugu og tveir látnir eftir óeirðir í Egyptalandi | Myndir Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. febrúar 2015 13:00 Grátandi faðir syrgir son sinn sem lést í óeirðunum í gærkvöldi. vísir/afp
Egypsk yfirvöld hafa frestað öllum knattspyrnuleikjum í landinu um óákveðinn tíma eftir að 22 létust í óeirðum í Kaíró í gærkvöldi. Fólk tróðst undir þegar lögreglan beitti hóp stuðningsmanna Zamalek táragasi, en þeir voru að reyna að troða sér inn á leik gegn erkifjendunum ENPPI í borgarslag. Stuðningsmennirnir kenna lögreglunni um hvernig fór þar sem aðeins eitt lítið hlið var opnað fyrir alla stuðningsmennina til að komast inn. Handtökuskipun hefur verið gefin út á forsvarsmenn stuðningsmannahóps Zamaleks sem ber heitið Hvítu Riddararnir. Fréttainnslag frá Al Jazeera um óeirðirnar: Þetta er í annað sinn á þremur árum sem svona skelfilegur atburður á sér stað á knattspyrnuleik í Egyptalandi, en árið 2012 létust 74 í óeirðum í Port Said. Fyrir utan þá 22 sem létust eru 20 til viðbótar særðir, samkvæmt þeim vitnum sem fréttamenn BBC hafa talað við í Kaíró. Leikurinn í gær hélt áfram og var kláraður þrátt fyrir óeirðirnar. Umhverfið eftir leikinn var ekki fagurt, en í kringum völlinn lágu skór þeirra sem særðust og þeirra sem létust. Vitni sögðu fréttamönnum BBC að girðing hefði fallið til jarðar og stuðningsmenn byrjað að gera sig líklega til að komast í stórum hópi inn á völlinn. „Allt í einu byrjaði lögreglan að skjóta að okkur táragasi,“ segir eitt vitnið og annað segir að 50 manns hafi allt í einu verið komnir ofan á hvorn annan. Saksóknari ríkisins í Kaíró hefur skipað opinbera rannsókn á atburðum gærkvöldsins.vísir/gettyvísir/gettyvísir/gettyvísir/afpÓeirðirnar í Port Said 2012:
Fótbolti Mest lesið Hættur aðeins þrítugur Golf Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Fleiri fréttir Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Freyr himinlifandi með íslensku strákana Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Barcelona með fjögurra stiga forskot inn í nýtt ár Sjá meira