Nýr sendiherra Norður-Kóreu heimsótti Bessastaði Bjarki Ármannsson skrifar 27. september 2015 14:14 Ólafur Ragnar Grímsson (t.v.) og Kang Yong Dok, sendiherra Norður-Kóreu. Mynd/Forseti Íslands
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók þann fimmtánda september síðastliðinn við trúnaðarbréfi nýs sendiherra Norður-Kóreu á Íslandi, Kang Yong Dok.Að því er segir um fundinn á vef forsetans, var meðal annars rætt um áhuga norður-kóreskra stjórnvalda á aukinni nýtingu hreinnar orku og reynslu Íslendinga á því sviði auk þess sem sendiherrann lýsti áhuga á að efla árangursríka efnahagssamvinnu við önnur ríki. Kang er sendiherra Norður-Kóreu í Stokkhólmi og gagnvart Íslandi, Noregi, Danmörku, Finnlandi, Lettlandi og Litháen. Ekkert er vitað um Kang en hans er fyrst getið í ríkisfréttamiðli Norður-Kóreu þegar greint er frá skipun hans í þetta embætti. Greint var frá því á sínum tíma að Pak Kwang Chol, forveri Kang í embættinu, var kallaður aftur til Norður-Kóreu í desember árið 2013 um það leyti sem nánum samstarfsmanni hans, Jang Sung-taek nokkrum, var vikið frá störfum og hann rekinn úr Verkamannaflokki Kóreu. Ríkismiðill landsins greindi síðar frá því að Jang hefði verið tekinn af lífi. Ekkert er vitað um afdrif fyrrverandi sendiherrans Pak en erlendir fréttamiðlar segja að margir af nánum ættingjum Jang hefðu einnig verið drepnir. Ríkisstjórn Norður-Kóreu hefur gerst sek um margs konar mannréttindabrot í gegnum tíðina. Ekki kemur fram á vef forsetans hvort mannréttindamál hafi verið rædd á fundinum á Bessastöðum.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Fleiri fréttir Sannfærð um undanþágur í fiskveiði- og landbúnaðarmálum Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Sjá meira