Vilja Glaðheima á barnvænni stað sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 23. september 2015 21:33 Ástæðan er meðal annars slysahætta og hávaða- og eiturefnamengun. vísir/vilhelm
Íbúar í Langholtshverfi hafa sett af stað undirskriftasöfnun þar sem þess er krafist að Reykjavíkurborg finni frístundaheimilinu Glaðheimum betri og barnvænni staðsetningu. Ástæðan er meðal annars slysahætta og hávaða- og eiturefnamengun. Frístundaheimilið er á horni Sæbrautar og Holtavegar og er lóð þess ógirt og opin út á Sæbraut. Foreldrar barnanna segja það skapa mikla hættu fyrir börn sem hafi ekki þroska eða reynslu til að leggja mat á þá hættu sem þau geti komið sér í. Erfitt geti reynst fyrir starfsfólk að fylgjast með öllum þeim sem frístundaheimilið sækja.Kynlífsverslun andspænis frístundaheimilinu Þá er jafnframt gagnrýnt að verslun með kynlífsvörur og tilheyrandi útstillingum standi andspænis Glaðheimum. „Foreldrum þykir almennt afar óviðeigandi að staðsetja slíka verslun í nærumhverfi barnanna,“ segir á síðu undirskriftasöfnunarinnar. Þá eigi börn, samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, rétt á að lifa og þroskast í besta mögulega umhverfi. „Allar ákvarðanir stjórnvalda ber að taka með sjónarmiðið um það sem barni er fyrir bestu í forgangi. Okkur ber að tryggja börnunum okkar þá vernd og umönnun sem þau eiga tilkall til og rétt á, á grundvelli Barnasáttmálans sem nú hefur lagagildi á Íslandi.“Viðráðanlegt verkefni Því ætti það að vera stjórnvöldum viðráðanlegt verkefni að finna frístundaheimilinu nýja og varanlega staðsetningu í Laugardalnum. Til dæmis sé ónýtt lóð neðan við lóð Langholtsskóla sem gæti verið kjörin staðsetning fyrir öruggt og barnvænt frístundaheimili. „Við skorum á Reykjavíkurborg að bregðast við fyrir börnin okkar sem allra fyrst.“ Undirskriftasöfnunin var sett á laggirnar fyrir tæpri viku og hafa nú rúmlega 150 manns ritað nafn sitt á listann. Hann verður afhentur skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar hinn 30. september næstkomandi. Söfnunina má finna hér.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fleiri fréttir „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar Sjá meira