Fótboltabullur réðust að króatíska landsliðsþjálfaranum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2015 09:00 Niko Kovac. Vísir/Getty
Niko Kovac, þjálfari króatíska fótboltalandsliðsins, var í hópi frá króatíska knattspyrnusambandinu sem varð í gær fyrir árás frá fótboltabullum á leið sinni til fundar í Split. Niko Kovac stýrði króatíska landsliðinu til sigurs í umspilsleikjum á móti Íslandi fyrir einu og hálfu ári síðan þá nýtekinn við landsliðsþjálfarastöðunni. Liðið gerði ekki mikið á HM en hefur byrjað undankeppni EM vel. Tíu fótboltabullur merktar fótboltafélaginu Hajduk Split réðust að hópnum þar sem hann stoppaði á leið sinni til borgarinnar. Fyrst létu þeir fúkyrðunum rigna yfir hópinn en svo réðust þeir á þá. Niko Kovac sat inn í bíl þegar atvikið gerðist og enginn meiddist alvarlega í þessari árás. Stuðningsmenn Hajduk Split hafa verið mjög ósáttir síðan að þeim var meinaður aðgangur að útileik liðsins á dögunum en það er ekki ljóst hvort þessi árás tengist því beint. Króatíska landsliðið mun spila við Ítalíu í Split í júní en þarf að gera það fyrir framan tóman leikvang þar sem UEFA er að refsa sambandinu fyrir kynþáttaníð króatíska áhorfenda á leik gegn Noregi í lok mars. Árásin í gær mun ekki hafa nein áhrif á þann leik og í yfirlýsingu frá sambandinu þá kom einnig fram að króatíska sambandið líti ekki svo á að fótboltabullurnar hafi komið fram fyrir hönd Hajduk Split, stuðningsmannasveit félagsins (Torcida) eða Split. Króatíska landsliðið er í efsta sætið í sínum riðli í undankeppni EM 2016 en liðið hefur náð í 13 stig af 15 mögulegum í fyrstu fimm leikjum sínum.
Fótbolti Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met Sjá meira