Norðmaðurinn sendur heim Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. apríl 2015 11:48 Tvö flug eru frá Íslandi til Óslóar um hádegisbilið. Vísir/Pjetur
Norðmaður um fimmtugt, sem stöðvaður var af tollgæslu og lögreglu við komuna til Ísland í gær ásamt íslenskum vini sínum, heldur af landi brott í dag. Þetta staðfestir Vilhjálmur Þórhallsson, löglærður fulltrúi lögreglustjóra, í samtali við Vísi. Ákvörðunin sé tekin á grundvelli Útlendingalaga og er vísað til allsherjarreglu og almannaöryggis. Maðurinn átti bókað flug aftur til Noregs á föstudag. Maðurinn er talinn tilheyra mótorhjólasamtökunum Devil's Choice sem eru opinber stuðningssamtök Hells Angels. Vísir fjallaði um málið í morgun en lögmaður mannsins, Guðmundur St. Ragnarsson, segir að maðurinn sé ekki á sakaskrá í Noregi. Sömuleiðis hafi hann ferðast til annarra Evrópulanda án vandræða. Vilhjálmur segir í samtali við Vísi að maðurinn sé talinn hafa tengsl við skipulagða glæpastarfsemi. Á þeim grundvelli sé maðurinn tekinn til hliðar á grundvelli Útlendingalaga en þar segir að heimilt sé að vísa EES eða EFTA borgara úr landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum eftir komu þeirra vegna almannaöryggis.Frá húsakynnum Devil's Choice.Mega yfirgefa landið hvenær sem er Maðurinn hefur verið vistaður í opnum fangaklefa hjá Lögreglunni á Suðurnesjum þar sem engin aðstaða er til þess á landamærunum. Klefi hans er því opinn og getur hann farið á salerni og reykt sígarettur kjósi hann að gera það enda ekki um handtöku að ræða. Sömuleiðis sé honum frjálst að yfirgefa landið þegar hann vilji. Það gildi almennt um þá sem stöðvaðir séu á landamærunum. Devil's Choice voru með íslenskt útibú um tíma og var til umfjöllunar þegar níu Norðmenn voru stöðvaðir á Keflavíkurflugvelli í október 2013. Í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar sagðist formaður samtakanna hér á landi að samtökin ætluðu að leita réttar síns. Búið væri að taka þau af lífi án dóms og laga. Aðspurður hvort mál sem þessi kæmu reglulega upp á borð Lögreglunnar á Suðurnesjum sagði hann að svo væri. Síðan í október 2013 hefðu eitt og eitt komið upp en hann hefði þó ekki tölu á þeim.
Tengdar fréttir Meintur meðlimur Devil´s Choice í haldi lögreglu Norðmaður um fimmtugt var stöðvaður við komuna til landsins í gær. Lögmaður mannsins segir manninn með hreina sakaskrá og vinur hans segir hann náttúruunnanda. 14. apríl 2015 10:01 Mest lesið Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Innlent Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Erlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Erlent Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Fleiri fréttir Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Sjá meira
Meintur meðlimur Devil´s Choice í haldi lögreglu Norðmaður um fimmtugt var stöðvaður við komuna til landsins í gær. Lögmaður mannsins segir manninn með hreina sakaskrá og vinur hans segir hann náttúruunnanda. 14. apríl 2015 10:01