800 þúsund börn á flótta í Nígeríu Samúel Karl Ólason skrifar 14. apríl 2015 10:27 Vísir/EPA
Eitt ár er nú liðið frá því að hryðjuverkasamtökin Boko Haram rændu rúmlega 200 stúlkum í bænum Chibok í Nígeríu. Í nýrri skýrslu frá UNICEF segir að fleiri en 800 þúsund börn séu nú á flótta vegna ofbeldis og átaka í landinu. UNICEF gaf út skýrsluna Horfin barnæska í tilefni þess að ár væri liðið frá ráni stúlknanna. „Ránið á fleiri en 200 stúlkum í Chibok er því miður aðeins eitt af ótal, hræðilegum mannréttindabrotum sem sífellt fleiri börn verða fyrir um alla Nígeríu,“ er haft eftir Manuel Fontaine, framkvæmdastjóri UNICEF í Vestur- og Mið-Afríku í tilkynningu frá UNICEF á Íslandi.Mustapha, ungur drengur sem flúði átökin í Nígeríu, teiknaði mynd á barnvænu svæði UNICEF sem lýsir reynslu hans á flóttanum.Mynd/MustaphaSamkvæmt skýrslunni hafa meira en ein og hálf milljóna manna þurft að yfirgefa heimili sín vegna átaka á milli Boko Haram, herja Nígeríu og nágrannaþjóða þeirra og annarra vopnaðra hópa. Þar af eru rúmlega 800 þúsund börn. Þá hafa fleiri en 300 skólar verið skemmdir eða eyðilagðir. Minnst 196 kennarar og 314 skólabörn hafa verið myrt. Ungum konum og stúlkum er nauðgað og þær neyddar í hjónaband og þrælkunarvinnu. Í tilkynningu UNICEF segir að samtökin hafi stóraukið viðbúnað sinn vegna ástandsins. Þá segir að á næstu sex mánuðum muni þau útvega 60 þúsund börnum sálrænan stuðning og aðstoð við að vinna úr reynslu sinni. UNICEF vinnur einnig að því að útvega hreint drykkjarvatn og og lífsnauðsynlega heilsugæslu, útbúa tímabundið kennsluhúsnæði til að veita börnum aðgengi að menntun á ný og veita vannærðum börnum nauðsynlega meðferð. Neyðarstarf UNICEF er stutt af heimsforeldrum UNICEF, en hér á Íslandi eru rúmlega 26 þúsund heimsforeldrar.
Tengdar fréttir Ár liðið frá því að Boko Haram rændu rúmlega 200 skólastúlkum Sjónarvottur í Nígeríu segist hafa séð um 50 stúlkur, sem eru í haldi hryðjuverkasamtakanna, á lífi í norðausturhluta Nígeríu. 14. apríl 2015 07:28 Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Erlent Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Fleiri fréttir Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Sjá meira
Ár liðið frá því að Boko Haram rændu rúmlega 200 skólastúlkum Sjónarvottur í Nígeríu segist hafa séð um 50 stúlkur, sem eru í haldi hryðjuverkasamtakanna, á lífi í norðausturhluta Nígeríu. 14. apríl 2015 07:28