Um fjórðungur ekki með börn sín til tannlæknis Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 6. janúar 2015 18:22
Um fjórðungur barna á Íslandi fer ekki í reglubundnar tannlæknaskoðanir. Því er hafin vinna við að útbúa kerfi, svokallað heimilistannlæknakerfi, svo hægt sé að fylgjast með þeim börnum sem ekki leita til tannlæknis. Nú um áramótin tók í gildi samningur um gjaldfrjálsar tannlækningar barna og nær hann til þriggja ára barna og barna á aldrinum átta til sautján ára. Þá tekur hann til allra barna í bráðvanda, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, óháð áfangaskiptingu samningsins. Samningurinn hefur komið í fjórum skrefum frá maí 2013 en frá og með janúar 2018 munu öll börn yngri en átján ára njóta ókeypis tannlækninga. „Fólk heldur að þetta sé svo dýrt og fer ekki með börnin til tannlæknis. Það þarf kannski bara að kynna þetta betur,“ sagði Kristín Heimisdóttir, formaður Tannlækningafélags Íslands, í samtali við Bítið á Bylgjunni í morgun. Heimilistannlæknir er forsenda þess að börn njóti gjaldfrjálsra tannlækninga. Um 75 prósent barna eru með skráðan heimilistannlækni en erfitt er að fylgjast með þeim 25 prósentum sem eftir standa, að sögn Kristínar. „Við erum að vinna að því í samvinnu við yfirvöld að búa til kerfi þar sem við finnum þessi börn sem ekki er farið með og finna leiðir til þess að fara með þau,“ segir Kristín. „Það er lítill hópur sem er illa staddur og dregur meðaltalið svolítið til hjá okkur þannig að við erum ekki að standa okkur vel miðað við nágrannalöndin. Við erum með stóran hóp sem stendur sig mjög vel þannig að það er langmikilvægast að ná í þau börn sem ég hef grun um að skili sér síst. Börn velja sér ekki foreldra,“ segir hún. Mikilvægt sé að samfélagið grípi inn í og hlaupi undir bagga, því öll börn eigi rétt á að njóta tannlæknaþjónustu. Börn séu í mismikilli áhættu og það sé tannlæknis að ákveða hversu oft barnið kemur í skoðun. Foreldrar geta nýtt sér gjaldfrjálsar tannlækningar með því að fylla út eyðublað á vefsvæði Sjúkratrygginga Íslands, sjukra.is. Séu þeir í vandræðum með að fylla það út geta þeir gert það í samráði við sinn tannlækni. Hægt er að hlusta á viðtalið við Kristínu í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Sjá meira