Tónlist

Gleðin við völd hjá Tónum og Trix

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Tónar og Trix er sönghopur eldri borgara í Þorlákshöfn.
Tónar og Trix er sönghopur eldri borgara í Þorlákshöfn. mynd/unnar
Í lok maí kemur út plata tónlistarhóps eldri borgara í Þorlákshöfn. Platan heitir það sama og hópurinn, Tónar og Trix og með þeim á plötunni er einvala lið íslenskra tónlistarmanna. Þar má nefna gestasöngvarana Kristjönu Stefáns, Sölku Sól, Jónas Sig, Unnstein Manuel og Bogomil Font.

Á plötunni eru kunnug íslensk dægurlög, flest í latin stíl, ásamt lögum sem hópurinn sjálfur eða meðlimir úr honum hafa samið. Hópurinn hefur starfað saman síðan árið 2007 en meðlimir hittast vikulega til að syngja, spila á hljóðfæri og skemmta sér. Hópurinn hefur meðal annars komið fram með Jónasi Sigurðssyni á útgáfutónleikum hans og með Mugison um borð í Húna.

Hópurinn stefnir að útgáfu plötu samnefnda sér en útgáfutónleikar verða haldnir í Þorlákshöfn 31. maí og Gamla Bíó 2. júní. Miða má nálgast á midi.is en einnig er hægt að leggja hópnum lið inn á Karolina Fund. Upplýsingar um meðlimi hópsins má sjá á Facebook síðu Tóna og Trix. Fyrsta lagið af plötunni má heyra hér að neðan en þar syngur hópurinn Hey Mambó ásamt Bogomil Font.


Tengdar fréttir

Skellti í sumarsmell

Erla Markúsdóttir er sjötíu og átta ára gömul og hluti af tónlistarhópnum Tónar og trix í Þorlákshöfn. Erla samdi lag og texta við lag á fyrstu plötu hópsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×