„Sýndu ófæddu barni þínu smá virðingu“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 1. apríl 2015 12:44 "Þú getur einfaldlega ekki falið eitthvað svona,“ sagði Kristi og sýndi bumbuna í fréttaskýringarþætti á sjónvarpsstöðinni þar sem hún starfar.
Kanadíski veðurfræðingurinn Kristi Gordon hefur fengið ótal haturspósta eftir að hún tilkynnti áhorfendum að hún væri ólétt. Kristi, sem á von á öðru barni sínu eftir þrjá mánuði, bað áhorfendur um að „vera umburðarlyndir gagnvart klæðaburði hennar“ þar sem hún væri ólétt og það myndi væntanlega sjást í bumbuna í sjónvarpinu. Veðurfræðingurinn las síðan upp bréf sem hún fékk frá einum áhorfanda: „Ekki á neinni annarri sjónvarpsstöð í Norður-Ameríku höfum við séð jafn ógeðslegan veðurfræðing og þig. Bumban á þér er eins og Hindenburg og rassinn á þér er eins og klósett. Við slökkvum núna á Global.“Gerðist líka þegar Kristi var ólétt að fyrsta barninu sínu Þá fékk Kristi líka annað bréf sem var á þessa leið: „Kauptu almennileg föt og sýndu ófæddu barni þínu smá virðingu. Þú ert ekki fyrsta konan til að verða ólétt. Guð minn góður.“ Kristi sagði í samtali við fréttaskýringarþátt á Global-sjónvarpsstöðinni að hún hefði í raun átt von á hatrinu: „Þetta gerðist líka þegar ég var ólétt að fyrsta barninu mínu. Eftir því sem bumban stækkaði fékk ég fleiri og fleiri leiðinleg komment og tölvupósta frá fólki.“ Hún stóð síðan upp og sýndi bumbuna: „Þú getur einfaldlega ekki falið eitthvað svona.“ Kristi sagði svo að þrátt fyrir að hún hafi átt von á þessu og sé örugg með sig þá hafi öll neikvæðnin vegna óléttunnar haft áhrif á hana. „Við getum sagt að þetta fólk sé ruglað en þetta hefur samt áhrif á mann, þrátt fyrir allt.“
Mest lesið Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Fleiri fréttir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Sjá meira