Íbúar í Buenos Aires fundu jarðskjálftann Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 18. september 2015 07:00 Michelle Bachelet forseti Chile Nordicphotos/AFP
Átta létust í jarðskjálftanum í Chile síðastliðið miðvikudagskvöld og um milljón manns yfirgáfu heimili sín í kjölfar skjálftans. Einnar manneskju er saknað. Skjálftinn reið yfir rétt fyrir klukkan ellefu að íslenskum tíma og upptök hans voru um 232 kílómetra norðvestur af Santiago, höfuðborg Chile. Skjálftinn mun hafa varað í um þrjár mínútur og fundu Chilebúar fyrir nokkrum eftirskjálftum. Byggingar inni í landi léku á reiðiskjálfi og 4,5 metra flóðbylgja skall á ströndum Chile. Michelle Bachelet, forseti Chile, ávarpaði þjóðina á miðvikudaginn. „Enn og aftur horfumst við í augu við reiðarslag af völdum náttúrunnar,“ sagði hún og hvatti landsmenn til að halda sig frá ströndum landsins en yfirvöld lýstu yfir varúðarástandi vegna hættu á flóðbylgjum. Því hefur nú verið aflétt. Jarðskjálftinn var öflugri en sá sem varð í Nepal í apríl síðastliðnum. Skjálftinn í Chile var 8,3 stig á Richterskvarða en sá sem varð í Nepal um 8,1 stig. Íbúar í Buenos Aires í Argentínu munu hafa fundið fyrir skjálftanum. Með hliðsjón af mikilli eyðileggingu og mannfalli í Nepal mega Chilebúar teljast heppnir en skaðinn af skjálftanum er bara brot af eyðileggingunni sem varð í Nepal. Árið 2010 reið yfir Chile fimmti stærsti jarðskjálfti sem mælst hefur, 8,8 stig. Sá skjálfti olli víðtækri eyðileggingu en 525 manns létust og 25 týndust. Jarðskjálftar eru afar algengir á svæðinu en eftir jarðskjálftann árið 2010 vörðu stjórnvöld umtalsverðu fjármagni til að tryggja að viðlíka eyðilegging ætti sér ekki stað aftur. Viðbúnaðurinn virðist hafa virkað en eyðileggingin var ekki mikil miðað við styrk skjálftans.
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Innlent Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Erlent Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Erlent Fleiri fréttir Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepnir í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Sjá meira