Innlent

Semja við Grænland um skiptingu á gullkarfa

Atli Ísleifsson skrifar
Karfi.
Karfi. Vísir/Stefán
Búið er að undirrita tvíhliða samning milli Íslands og Grænlands um skiptingu gullkarfa. Samningurinn er til þriggja ára og felur í sér skiptinguna 90 prósent fyrir Ísland og 10 prósent fyrir Grænland. Auk þess er gert ráð fyrir 350 tonna afla annarra þjóða á hverju ári samningsins.

Í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti kemur fram að í samningnum sé ákveðin nýtingaráætlun sem feli í sér aflareglu, sem sé sú hin sama og íslensk stjórnvöld samþykktu á síðasta ári eftir að Alþjóðahafrannsóknaráðið yfirfór hana með tilliti til hámarks langtíma afraksturs og alþjóðlegra varúðarsjónarmiða.

„Jafnframt var gerður samningur um landanir grænlenskra skipa í íslenskum höfnum fyrir árið 2015. Geta grænlensk skip á þessu ári landað allt að 50 þúsund tonnum af makríl og 15 þúsund tonnum af norsk-íslenskri síld.

Góð samskipti Íslands og Grænlands á sjávarútvegssviði eru afar þýðingarmikil báðum þjóðum. Þessi samningur mun styrkja enn frekar samstarf þessara þjóða og tryggja ábyrgar veiðar úr þessum sameiginlega stofni þjóðanna.

Formaður samninganefndar Grænlands var Emanuel Rosing skrifstofustjóri í grænlenska sjávarútvegsráðuneytinu og formaður þeirrar íslensku var Jóhann Guðmundsson skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×