Læknaráð Landspítala: Fullyrðingar um aukin framlög standast ekki skoðun Atli Ísleifsson skrifar 25. september 2015 11:23 „Stjórn læknaráðs telur að hlutur Landspítalans í fjárlagafrumvarpi fyrir 2016 dugi ekki til að halda í horfinu miðað við verðlags- og launaþróun og vanrækslu undanfarinna ára,“ segir í ályktuninni. Mynd/Vilhelm
Læknaráð Landspítala lýsir í álykun yfir vonbrigðum með skilningsleysi fjárveitingarvaldsins á starfsemi Landspítalans. „Stjórn læknaráðs telur að hlutur Landspítalans í fjárlagafrumvarpi fyrir 2016 dugi ekki til að halda í horfinu miðað við verðlags- og launaþróun og vanrækslu undanfarinna ára. Fullyrðingar um aukin framlög standast ekki skoðun þegar búið er að taka tillit til vísitölubreytinga og ekkert tillit er tekið til vaxandi eftirspurnar eftir þjónustu,“ segir í ályktuninni. Læknaráð Landspítala skorar á Alþingi að endurskoða fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár með það að leiðarljósi að tryggja Landspítalanum nauðsynlega fjárveitingu til að geta hafið uppbyggingarskeið sem stuðlar að framþróun starfseminnar. „Læknaráð leggur áherslu á að batnandi staða ríkissjóðs nýtist til uppbyggingar á Landspítala eins og þjóðin hefur einhuga lýst yfir að vilji hennar standi til. Greinargerð:Endurreisa þarf grunnstoð íslensks heilbrigðiskerfis sem Landspítalinn er. Það verður ekki gert nema með verulega auknu fjármagni til reksturs spítalans og fyrir nýjum framkvæmdum. Nú er komið að skuldadögum. Ekki er nægilegt að halda í horfinu heldur þarf verulega innspýtingu af fjármagni til að snúa við óheillaþróun undanfarinna ára. Sérstaka athygli vekur að ekki sjást þess merki að staðið skuli við nýgerða kjarasamninga við heilbrigðisstarfsfólk. Til þess er fjárlagaramminn of naumt skorinn. Læknaráð varar við þessari vegferð og brýnir fyrir stjórnvöldum að standa við gerða samninga án þess að draga frekar saman þjónustu spítalans með tilheyrandi lengingu biðlista á komandi ári. Í forgangi þarf að vera að skapa sátt milli stjórnvalda og starfsstétta spítalans, í stað þess að efna til frekari úlfúðar og sundurlyndis. Eins og læknaráð Landspítala hefur endurtekið bent á undanfarin ár, er ljóst að staðan á Landspítala eftir langvinnt fjársvelti er algjörlega óásættanleg fyrir sjúklinga og vanáætlanir í fjárveitingum til lyfjamála bitnar harkalega á skjólstæðingum Landspítalans. Viðhaldi á húsnæði spítalans hefur ekki verið sinnt svo fullnægjandi sé og engin merki í núverandi frumvarpi um að á því verði sú breyting sem nauðsynleg er. Fjárveitingar til þess hluta hafa verið óbreyttar í krónum talið undanfarin ár þrátt fyrir stigvaxandi þörf. Stjórn læknaráðs ítrekar mikilvægi þess að flýta uppbyggingu nýs meðferðarkjarna og rannsóknarhúss og varar við þeirri hættu sem fylgir því að framkvæmdir dragist á langinn og telur útilokað að ná fram frekari hagkvæmni í rekstri fyrr en sameinaði Landspítalinn kemst í notkun,“ segir í ályktuninni.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Sjá meira