Mikil gleði á kokteilakeppni Gunnar Leó Pálsson skrifar 24. júní 2015 10:30 Vala Stefánsdóttir stóð uppi sem sigurvegari með drykkinn Lady Margarita. Mynd/Brynjar Snær
Mikið var um að dýrðir á Loftinu á mánudagskvöld þegar Grand Marnier Margarítu-keppni fór fram og léku barþjónar listir sínar í kokteilgerð. Eftir mikla keppni stóð Vala Stefánsdóttir uppi sem sigurvegari með drykkinn Lady Margarita. Í öðru sæti lenti Teitur R. Schiöth með drykkinn Amorítu og bronsverðlaunin hlaut Andri Davíð Pétursson með kokteilinn Rabarbara Margarítu. Keppendur sendu inn uppskriftir að sínum drykkjum og voru tíu uppskriftir valdar og því tíu sem öttu kappi. Um er að ræða alveg nýja tegund af keppni á Íslandi, þar sem margt var metið til stiga. Fyrst tóku barþjónar krossapróf um þekkingu á Margarítum og Grand Marnier. Þá tók við æsispennandi „Limesqueeze“-keppni þar sem bæði magn vökva og tími var metinn til stiga en hver barþjónn kreisti 1,5 kg af lime.Fagmennskan í fyrirrúmiÞátttakendur tóku einnig virkan þátt í keppninni og barþjónar komu með aðstoðarmenn sem blönduðu 1,5 lítra af keppniskokteilnum svo áhorfendur smökkuðu á sama tíma og dómnefnd og gáfu stig. Einnig voru gefin stig fyrir framkomu, fegurð vinnubragða og klæðaburð. Í dómnefnd voru meðal annars Ási frá Slippbarnum, Sóley Kristjánsdóttir, vörumerkjastjóri Grand Marnier, og hinn víðfrægi barþjónn af Naustinu, Viðar Ottesen, sem vann Grand Marnier-keppnina árið 1969 þegar Naustið var aðalklúbburinn. Í verðlaun var nótt í kastala Grand Marnier í Cognac-héraði og einnig nótt í París þar sem aðal kokteilbarirnir verða skoðaðir og allur kostnaður og uppihald er í boði Grand Marnier. Kynnir kvöldsins var „Margaríta“ Erla Maack. Viðar Ottesen var í dómnefnd en hann vann svipaða keppni árið 1969 og 1976.Hvað hefur breyst síðan Viðar sigraði í keppninni árin 1969 og 1976? Viðar Ottesen var í dómnefnd en hann vann svipaða keppni árið 1969 og 1976, sem hét þá barþjónakeppni Íslands og var haldin á vegum Barþjónaklúbbs Íslands. „Þetta var rosalega spennandi og mjög skemmtileg keppni í alla staði. Ég hef ekki komið nálægt svona keppni síðan á síðustu öld,“ segir Viðar spurður út í sína upplifun á keppninni. „Þetta fór ákaflega vel fram, góðir keppendur sem gerðu góða kokteila,“ bætir hann við. Hvað hefur mest breyst frá því að þú tókst þátt í keppni sem þessari? „Í dag er þetta miklu opnara en þegar ég var að keppa. Í gamla daga voru gestirnir þöglir úti í sal en í dag er allt mun líflegra og fólk fékk að smakka drykkina sem verið var að blanda,“ segir Viðar. Spurður út í sinn eftirlætiskokteil segist hann kunna best við gamla Manhattan-kokteilinn. „Sumir kokteilar ganga ár eftir ár, það er bara þannig.“ Viðar, sem var barþjónn á Naustinu, einum vinsælasta veitingastað landsins í 24 ár, kallaði sína sigurkokteila Flóttann eða The Fugitive árið 1969 og Black Jack árið 1976. „Ég man eftir fyrri kokteilnum, í honum var Grand Marnier, Kahlua, Cointreau og dry Cinzano. Ég skírði hann eftir vinsælli sjónvarpsseríu á þeim tíma, The Fugitive. Hann segist vera latur við að blanda kokteila í seinni tíð en að keppnin hafi þó blásið í gamlar kokteilglæður. „Ég var duglegur að blanda heima en það hefur minnkað, ég gerði meira þegar gestir voru að koma í mat og þess háttar. Mér þótti mjög vænt um að vera með í dómnefndinni, það kveikti gamlan neista. Kannski maður fái sér kokteil um helgina,“ segir Viðar og hlær.Viðar, Ottesen sem vann Grand Marnier-keppnina árið 1969, Sóley Kristjánsdóttir, vörumerkjastjóri Grand Marnier, og Ási á Slippbarnum voru í dómnefnd.Vala Stefánsdóttir stóð uppi sem sigurvegari með drykkinn Lady Margarita. Í öðru sæti lenti Teitur R. Schiöth með drykkinn Amorítu og bronsverðlaunin hlaut Andri Davíð Pétursson með kokteilinn Rabbabara Margarítu.Fólk skemmti sér konunglega á keppninni og fékk að smakka veglega drykkina jafnóðum.
Mest lesið „Grínast oft með að ég gaf honum um ellefu ár til að hætta við“ Lífið „Strákar verða að sýna tilfinningar“ Lífið Af hverju er hvítasunnan haldin hátíðleg? Lífið „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning „Ertu kannski Íslendingur?“ Lífið Stálheppinn viðskiptavinur N1 vann frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ Áskorun Listamaðurinn sem gleymdist gjörsamlega Menning Brúnkukrems- og karókíkvöld á dagskrá kvenfanga Lífið Myrkur Games birta fyrstu stiklu Echoes of the End Leikjavísir Fleiri fréttir „Strákar verða að sýna tilfinningar“ „Grínast oft með að ég gaf honum um ellefu ár til að hætta við“ Af hverju er hvítasunnan haldin hátíðleg? „Ertu kannski Íslendingur?“ Brúnkukrems- og karókíkvöld á dagskrá kvenfanga Krakkatían: Aldur, tími og Greta Thunberg Söfnuðu milljón krónum fyrir ungt fólk með krabbamein Fékk sér Stöð 2 húðflúr í beinni útsendingu Vann gullverðlaun fyrir sykurblómaskreytingu Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Hélt við konu besta vinar síns Ríkissáttasemjari selur glæsihús undir dönskum áhrifum Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Brynjar skiptir Aroni út Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Endurfrumsýning Brúðubílsins: „Lilli er eiginlega bróðir minn“ Opinberar nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerðina Geðbrigði ríður á vaðið í tónleikaröð á Dillon Sjá meira