Líkamsárás í Hafnarfirði Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 25. janúar 2015 10:03 Karlmaður var handtekinn fyrir að hafa ráðist á annan í Hafnarfirði. vísir/stefán
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í nótt en töluvert var um ölvun og umferðaróhöpp. Tveir fengu að gista fangageymslur. Í dagbók lögreglu segir að karlmaður hafi verið fluttur með skerta meðvitund á slysadeild í nótt eftir að hafa orðið fyrir líkamasárás í Hafnarfirði. Árásarmaðurinn var handtekinn. Annar maður var handtekinn, fyrir utan skemmtistað í Kópavogi. Sá hafði verið að atast í fólki og reyndi að fá það til að slást. Maðurinn vildi ekki upplýsa um hver hann væri og svo fór að hann var vistaður í fangaklefa, þar til hægt verður að ræða við hann. Þá barst lögreglu tilkynning um aðila á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur sem braut glas og var ógnandi. Þegar lögregla kom tók hann glerbrot í aðra höndina og var ógnandi. Hann neitaði að hlýða fyrirmælum lögreglu og var piparúða beitt á hann til að yfirbuga hann. Hann var vistaður í fangageymslu. Kona datt í miðbænum og fékk skurð á höfuðið. Lögregla og sjúkralið aðstoðuðu hana en áverkarnir voru minniháttar. Hún var flutt á slysadeild. Einn hringdi á lögreglu og lét vita að hann hefði brotið rúðu í bræði sinni. Hann var heldur ölvaður og var mikið í mun um að atvikið yrði skráð.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Þorsteinn Ólafsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar „Þessum málum ber að taka alvarlega“ Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum Sjá meira