Viðgerðarstandur fyrir reiðhjól settur upp í miðbæ Akureyrar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. september 2015 11:00 HFA
Akureyrarbær setti nýverið upp hjólreiðaviðgerðarstand í miðbæ Akureyrar. Var standurinn settur upp að frumkvæði Hjólreiðafélags Akureyrar og er hann sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi. Á viðgerðarstandinum fá finna loftpumpu og ýmis tæki og tól sem henta hjólreiðaviðgerðum auk þess sem hægt er að hengja hjól upp á standinn til þess að auðvelda vinnu við viðgerðir. Vilberg Helgason, formaður Hjólreiðafélags Akureyrar segir að standurinn sé sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi en slíkir standar þekkist víða erlendis.Finna má á standinum ýmis verkfæri sem gagnleg eru við viðgerðir og viðhald á hjólum.HFA„Þetta er alveg það nýjasta. Fyrirmyndin að þessum standi er erlend. Hann er sá eini sinnar tegundar hér á landi en við stefnum á að fá fleiri.“ Vilberg segir að aðstaða hjólreiðamanna hafi batnað til muna á Akureyri á undanförnum árum og að bærinn hafi gert átak í því að leggja stíga sem auðveldi útivist. „Á síðustu tveimur árum hefur mikið verið gert hér á Akureyri til þess að bæta aðstöðu hjólreiðamanna. Stígurinn sem lagður var meðfram Drottningarbraut gerði alla útivist sýnilegri auk þess sem lagður hefur verið hjólreiðastígur frá Hlíðarfjalli inn í Kjarnaskóg. Þetta ýtir undir áhugann á hjólreiðum hér sem hefur aukist mikið.“ Standurinn var gjöf frá Akureyrarbæ til hjólreiðamanna í bænum í tilefni Samgönguviku sem stóð yfir þann 16.-22. september sl. Um tvær vikur liðu frá því að hugmyndin um viðgerðarstandinn var sett fram þangað til að hann var settur upp. „Þetta var tekið með trompi. Standurinn er smíðaður í Slippnum hérna á Akureyri og þess vegna gat þetta tekið svona stuttan tíma. Þeir köstuðu frá sér verkefnum til þess að klára þetta fyrir okkur enda hjólreiðamenn í öllum stöðum samfélagsins.“
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Verkalýðsfélögin séu úrelt og þau hefði mátt leggja niður Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélögin séu úrelt og þau hefði mátt leggja niður Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Sjá meira