Hægt að drekka vatn frá Mars og nýta það í ræktun Birgir Olgeirsson skrifar 28. september 2015 22:11 Fljótandi vatn er að finna á Mars. Vísir/EPA/NASA „
Þetta er bara staðfesting á fyrri hugmyndum,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, um vatnsfundinn á Mars. Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, greindi frá því fyrr í dag að fljótandi vatn finnst á yfirborði plánetunnar. Sævar Helgi segir þessa niðurstöðu staðfesta það sem marga grunaði. „Menn hafa verið að leita að staðfestingu á því sem þeir sáu árið 2011. Meira segja nokkrum árum áður, í leiðangri Phoenix geimfarsins til Mars árið 2008, þá sáust dropar á fótum geimfarsins sem lenti við norðurpól Mars. Droparnir voru blandaðir saltvatni og urðu menn fyrst varið við það þá,“ segir Sævar Helgi. Þá sást einnig vatn á myndum HiRice-myndavélarinnar árið 2011 og nú hefur það verið staðfest með tilkynningunni frá því fyrr í dag. En hvaða þýðingu hefur þessi fundur fyrir okkur jarðarbúa og fyrirhugaðar mannaðar ferðir til Mars í framtíðinni?Sævar Helgi Bragason.vísir/antonHægt að gera það drykkjarhæft Sævar Helgi segir möguleika á að drekka vatnið, eftir að saltið hefur verið hreinsað úr því. „Af því gefnu að það væri búið að hreinsa það. Það er svo rosalega salt eins og staðan er núna, það er eina leiðin til að það geti haldist fljótandi við þessar aðstæður sem er á Mars. Það þyrfti að sía það og gera það drykkjarhæft, en með smá hreinsun þá gæti það verið hægt. Þá er allavega komin vatnslind sem menn geta nýtt sér í framtíðinni. Menn gætu svo sem líka gert það annar staðar, bara við miðbaug Mars þar sem hafa fundist gígar sem eru uppfullir af ís rétt undir yfirborðinu.“ Þessi tilkynning kemur sér væntanlega vel fyrir leikstjórann Ridley Scott varðandi kynningu á mynd hans The Martian sem er væntanleg í kvikmyndahús um allan heim. Myndin er byggð á samnefndri vísindaskáldsögu frá árinu 2011 eftir bandaríska rithöfundinn Andy Weir en hún segir frá geimfaranum Mark Watney sem er skilinn eftir á Mars og þarf að beita öllum brögðum til að halda lífi á þessari harðgerðu plánetu.Gæti nýst við ræktun Myndin líkir eftir þeim hugmyndum sem NASA hefur um mannaðar geimferðir til Mars og hefur árið 2030 verið nefnt í því samhengi. Sævar Helgi segir jarðarbúa þó ekki á leið ekki á leið til plánetunnar eftir fimmtán ár eins og staðan er í dag. „Það er engin áætlun uppi í sjálfu sér þó menn séu alltaf að tala um það. Það eru ekki til peningar. Það er ekki raunhæft að við séum að fara á Mars eftir fimmtán ár, því miður.“ Í myndinni The Martian þarf Watney til að mynda að finna leiðir til að rækta mat á Mars og er forvitnilegt að fylgjast með því ferli öllu saman. Sævar Helgi segir möguleikann á ræktun á Mars fyrir hendi og þá gæti þessi vatnsfundur nýst við hana. „Við vonum bara að við náum að rækta eitthvað fjölbreyttara en kartöflur og vonandi bara ekki með sömu aðferð og Mark Watney þurfti að beita til að gera það.“
Tengdar fréttir Fljótandi vatn finnst á yfirborði Mars Fljótandi vatn streymir niður gíga og gil yfir sumarmánuðina á Mars. 28. september 2015 15:27 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Fleiri fréttir Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Sjá meira
Fljótandi vatn finnst á yfirborði Mars Fljótandi vatn streymir niður gíga og gil yfir sumarmánuðina á Mars. 28. september 2015 15:27