Dæmdur fyrir íkveikju og tilraun til tryggingasvindls Jóhann Óli Eiðsson skrifar 24. júlí 2015 17:45 Frá Patreksfirði vísir/pjetur
Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi á dögunum karlmann á þrítugsaldri í tólf mánaða fangelsi fyrir íkveikju og tilraun til tryggingasvindls. Fullnustu refsingarinnar skal frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hann skilorð. Annar maður var sýknaður í málinu. Atvik málsins sem hér um ræðir áttu sér stað á Patreksfirði fyrir fjórum árum upp á dag. Húsið sem um ræðir var mannlaust og hafði verið rafmagnslaust frá janúar 2002. Maðurinn sem sýknaður var var þinglýstur eigandi hússins en sá sem sakfelldur var bar því við í yfirheyrslu hjá lögreglu að hann væri raunverulegur eigandi þess. Í upphafi var ætlunin að húsið upp svo það gæti orðið heimili fyrir fjölskyldu sína. Hann hafi hins vegar hvergi fengið fjármagn eða fyrirgreiðslu og því brugðið á það ráð að kveikja í því. Sá sem sýknaður var keypti bensín á brúsa sem þeir helltu yfir hitablásara og gólf á annarri hæð hússins. Í blásaranum komu þeir fyrir rokeldspýtu og fengu þriðja mann til að stinga blásaranum í samband um nóttina.Sjá einnig: Íkveikja á Patreksfirði - játningar liggja fyrir Hinn sakfelldi bar því við fyrir dómi að ekki væri hægt að sakfella hann fyrir tryggingasvindl þar sem hann hefði aldrei reynt að svíkja fé úr tryggingafélaginu. Dómurinn tók þá málsvörn ekki gilda og benti á að hann hefði aldrei fengið tækifæri til þess þar sem grunur féll á hann í raun áður en slökknað var í glæðunum. Sannað þótti að maðurinn hafi framkvæmt íkveikjuna með þeim ásetningi ða svíkja bætur úr tryggingafélagi sínu. Einnig þótti sannað að þinglýstur eigandi þess hafi vitað að bensín, það er hann keypti, ætti að nota til að kveikja í húsinu. Hins vegar þótti ekki sannað að hann vissi að til stæði að svíkja fé úr tryggingafélaginu. Var hann því sýknaður. Hinn sakfelldi rauf með brotinu skilorð fyrir þjófnaðarbrot og þótti refsing hans hæfilega ákveðin tólf mánuðir. Sökum þess að tæp fjögur ár tók að rannsaka og reka málið, þó það hefði talist upplýst tveimur dögum eftir brunann, var dómurinn skilorðsbundinn.
Mest lesið Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Fleiri fréttir Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Sjá meira