Vilja geta vopnað alla lögreglumenn sveinn arnarsson skrifar 22. apríl 2015 07:00 Að mati skýrsluhöfunda er búnaður íslensku lögreglunnar til mannfjöldastjórnunar líkt og í búsáhaldabyltingunni úr sér genginn og þarfnast endurnýjunar. Fréttablaðið/Stefán
Hlífðarbúnaður lögreglumanna sem starfa við mannfjöldastjórnun er að meginhluta úr sér genginn og þarf að endurnýja hann sem og margvíslegan búnað sérsveitar ríkislögreglustjóra sem er áratugagamall og þarfnast endurnýjunar. Þetta er mat höfunda greinargerðar um eflingu viðbúnaðar lögreglunnar. Birgitta Jónsdóttir, þingkona Pírata, gagnrýnir greinargerðina og segist frekar vilja nýta fjármagn til að fjölga óbreyttum lögreglumönnum í lögregluliðum landsins en til kaupa á búnaði fyrir sérsveitarmenn. „Við erum að sjá á landinu mjög fáa lögreglumenn með starfsskyldur á allt of stóru svæði. Ég væri til í að fjölga lögreglumönnum og veita mönnum þá meiri hvíld og öryggi,“ segir Birgitta. Höfundar greinargerðarinnar eru Jón Bjartmarz yfirlögregluþjónn, Guðmundur Ó. Þráinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn og Ásgeir Karlsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Segjast þeir, í greinargerðinni, vilja kaupa á fjórða hundrað skotvopna fyrir lögreglulið landsins. Að mati höfunda er nauðsynlegt að geta vopnað alla vakthafandi lögreglumenn hjá lögregluliðum utan höfuðborgarsvæðisins með hríðskotarifflum. Lágmarksbúnaður fyrir lögreglusveitir á landsbyggðunum er að þeirra mati tvær skammbyssur, tveir hríðskotarifflar, tvö skotheld vesti, skothjálmar og skotskildir til að bregðast við vopnamálum, eins og það er orðað í skýrslunni. „Óforsvaranlegt er að senda óvopnaða lögreglumenn í slík verkefni,“ segir í skýrslunni. Kostnaður við æskileg búnaðarkaup er á annað hundrað milljónir króna. Telja lögreglumenn líkur á vopnuðum hryðjuverkum á Íslandi hafa aukist undanfarin ár líkt og í hinum vestræna heimi. Af þeim sökum þurfi að efla viðbúnað lögreglunnar. Þessu er Birgitta ósammála. „Það er oft verið að skrifa skýrslur um vá sem er ekki til þar sem verið er að búa til grýlur úr einhverju sem við eigum ekki að hafa áhyggjur af. Það sem ógnar stöðugleika á Íslandi er frekar menn eins og Kristján Loftsson sem gulltryggir verkfall stórra hópa. Ég hef meiri áhyggjur af því,“ segir Birgitta.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Fleiri fréttir Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Nýjustu tölur í Suðurnesjabæ Sjá meira