Hætt við að kostnaður við millidómstig verði of mikill Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 5. apríl 2015 18:30
Réttarfarsnefnd telur hætt við að aukinn kostnaður við stofnun nýs millidómstigs muni vaxa fjárveitingarvaldinu í augum og jafnvel koma í veg fyrir nauðsynlegar breytingar á dómskerfinu. Nefndin leggur því til að kannaðir verði aðrir og ódýrari kostir.Ráðist í breytingar í áföngum Nefnd sem innanríkisráðherra skipaði í ágúst 2013 til að semja reglur um upptöku millidómstigs skilaði ráðherra tillögum sínum í síðasta mánuði. Nefndin gerir tillögu um að nýr dómstóll, Landsréttur, verði settur á stofn og þar muni starfa 15 dómarar. Dómurum við Hæstarétt yrði um leið fækkað úr níu í sex. Innanríkisráðherra óskaði eftir umsögn réttarfarsnefndar um tillögurnar, en nefndin hefur það hlutverk að vera ráðherra til ráðgjafar á sviði réttarfars. Í umsögn réttarfarsnefndar kemur fram að stofnkostnaður við nýjan Landsrétt muni nema háum fjárhæðum. Í ljósi þess að erfitt hafi reynst að fá aukin fjárframlög til dómstólanna á síðustu árum sé hætt við að hinn aukni kostnaður muni vaxa fjárveitingarvaldinu í augum og jafnvel koma í veg fyrir að breytingar verði gerðar á skipan dómstólanna á næstu árum. Því telur réttarfarsnefnd rétt að kannaðir verði aðrir og ódýrari kostir. Annars vegar leggur nefndin til að ráðist yrði breytingarnar í áföngum, til dæmis með því að sex dómarar tækju til starfa við Landsrétt í upphafi og mál sem kæmu til kasta dómstólins yrðu að sama skapi færri. Mál sem kæmu til kasta Hæstaréttar yrðu þannig fleiri og því væri ástæðulaust að fækka dómurum við Hæstarétt í þessum fyrsta áfanga. Lítil samstaða um tillögur nefndarinnar Hins vegar leggur réttarfarsnefnd til leið sem hún telur enn einfaldari í sniðum og þar með mun ódýrari, en hún felur í sér að komið yrði á fót vísi að millidómstól. Í sinni einföldustu mynd gæti slíkur dómstóll verið skipaður dómsforseta auk tveggja héraðsdómara sem tækju sæti í hverju máli auk forseta. Það er því óhætt að segja að lítil samstaða virðist vera um þær leiðir sem nefnd innanríkisráðherra leggur til, bæði varðandi upptöku millidómstigs og einnig um breytingar á fyrirkomulagi við skipan dómara við Hæstarétt. Innanríkisráðherra hefur sagt að hún muni ekki leggja fram frumvarp um þessi mál á vorþingi en þau gætu hugsanlega litið dagsins ljós í haust.
Tengdar fréttir Landsyfirréttur taki við áfrýjunarmálum til Hæstaréttar Nefnd sem Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði í fyrra í tengslum við dómskerfi landsins leggur til að stofnað verði nýtt millidómsstig sem beri heitið Landsyfirréttur. 17. október 2008 15:13 Alþingi mun staðfesta skipun dómara við nýtt millidómstig - Landsrétt Stefnt er að því að nýtt millidómstig, sem tekið verður upp á Íslandi, muni bera heitið Landsréttur. Verður það sérstakur áfrýjunardómstóll fyrir allt landið sem mun létta þunganum á Hæstarétti ef tillögur nefndar sem vinna frumvarp um málið ná fram að ganga. Alþingi mun þurfa að staðfesta skipun 15 dómara við hinn nýja dómstól sem er alveg ný aðferðafræði við skipun dómara hér á landi. 20. júlí 2014 18:52 Vill millidómsstig og færri hæstaréttardómara Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari vill að þegar í stað verði hugmynd um millidómstig hrint í framkvæmd. Það dómstig þurfi bæði að fjalla um einkamál og sakamál. Kostnaðurinn við það sé mun minni en margir telji. 29. október 2010 09:36 Vilja flytja héraðsdóm af Lækjartorgi Lagt hefur verið fram bréf þar sem borgin óskar eftir viðræðum við innanríkisráðuneyti um flutning Héraðsdóms Reykjavíkur af Lækjartorgi, á Lögreglustöðvarreitinn við Hlemm. 13. febrúar 2014 15:15 Mest lesið Hæstiréttur staðfestir dóm yfir móður sem myrti son sinn Innlent Upplausn á Vopnafirði: Starfslok sveitarstjórans, oddviti hættir og rifist á fundum Innlent Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Erlent Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina Erlent Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Innlent Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Innlent Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Ársæll í veikindaleyfi: „Mjög skrýtið að fá sleggju ríkisstjórnar í andlitið“ Innlent „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Innlent Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Fleiri fréttir Upplausn á Vopnafirði: Starfslok sveitarstjórans, oddviti hættir og rifist á fundum Menntaverðlaun Suðurlands fóru á Hellu Hæstiréttur staðfestir dóm yfir móður sem myrti son sinn Lýsa ófremdarástandi og krefjast aðgerða strax Vinna að því að fækka sjúklingum og flytja annað Mikilvægi Íslands eykst með nýrri aðgerð NATO á norðurslóðum Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Fjöldi síma kom á óvart Neyðaróp starfsmanna og leynisímar Réðust í húsleit í leit að þýfi Gripinn með þýfi í fórum sínum og sparkað úr landi Kynnir drög að aðgerðaáætlun til að bregðast við offitu Íslendinga Ársæll í veikindaleyfi: „Mjög skrýtið að fá sleggju ríkisstjórnar í andlitið“ Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Starfsfólk bráðamóttöku óttist um heilsu sína og öryggi Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Vill að virðisaukaskattur á barnavörur verði látinn fjúka Starfsfólk á bráðamóttöku segist óttast um öryggi sitt Afplánaði of lengi en fær ekki krónu Hæstiréttur fjallar um hryðjuverkamálið svokallaða í dag Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Sjá meira
Landsyfirréttur taki við áfrýjunarmálum til Hæstaréttar Nefnd sem Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði í fyrra í tengslum við dómskerfi landsins leggur til að stofnað verði nýtt millidómsstig sem beri heitið Landsyfirréttur. 17. október 2008 15:13
Alþingi mun staðfesta skipun dómara við nýtt millidómstig - Landsrétt Stefnt er að því að nýtt millidómstig, sem tekið verður upp á Íslandi, muni bera heitið Landsréttur. Verður það sérstakur áfrýjunardómstóll fyrir allt landið sem mun létta þunganum á Hæstarétti ef tillögur nefndar sem vinna frumvarp um málið ná fram að ganga. Alþingi mun þurfa að staðfesta skipun 15 dómara við hinn nýja dómstól sem er alveg ný aðferðafræði við skipun dómara hér á landi. 20. júlí 2014 18:52
Vill millidómsstig og færri hæstaréttardómara Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari vill að þegar í stað verði hugmynd um millidómstig hrint í framkvæmd. Það dómstig þurfi bæði að fjalla um einkamál og sakamál. Kostnaðurinn við það sé mun minni en margir telji. 29. október 2010 09:36
Vilja flytja héraðsdóm af Lækjartorgi Lagt hefur verið fram bréf þar sem borgin óskar eftir viðræðum við innanríkisráðuneyti um flutning Héraðsdóms Reykjavíkur af Lækjartorgi, á Lögreglustöðvarreitinn við Hlemm. 13. febrúar 2014 15:15