Skaut par og sex börn til bana í heimahúsi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. ágúst 2015 22:18 David Conley.
Átta manna fjölskyldu var haldið gegn vilja sínum og síðan skotin til bana í húsi í Houston í Texas í Bandaríkjunum í dag. Morðinginn á glæpaferil að baki en hann hafði áður verið í sambandi með móðurinni. AP greinir frá. David Conley, 48 ára Bandaríkjamaður, hefur verið ákærður fyrir morðin átta. Hann gæti átt yfir höfði sér dauðarefsingu. Honum er haldið í fangelsi í Houston. Fimmtugur faðir og fertug móðir eru dáin og sömuleiðis sex börn á aldrinum sex til þrettán ára. Elsti drengurinn er talinn vera sonur Conley og móðurinnar. Fulltrúi lögreglu segir ekki hægt að skilja hvað hafi orðið til þess að Conley skaut átta saklausar manneskjur til bana. Talið er að um ósætti hafi verið að ræða milli hans og barnsmóðurinnar. Conley hafði tilkynnt lögreglu í gær að skipt hefði verið um lása á heimilinu eftir að hann flutti út. Í vitnisburði Conley kemur fram að hann hafi farið inn um ólæstan glugga.Langur sakaferill Lögregla var svo kölluð út að húsinu í dag en enginn svaraði þegar barið var að dyrum. Lögreglumenn sáu karlmann á gólfinu með skotsár og heyrðu í kjölfarið byssuskot innan úr húsinu. Í hönd fór skotbardagi milli Conley og lögreglu sem lauk með því að Conley gaf sig fram. Conley mun eiga sakaferil að baki sem nær í það minnsta aftur til 1988. Hann komst síðast í kast við lögin fyrir mánuði þegar hann réðst á aðila í fjölskyldu sinni. Um er að ræða konu en ekki liggur ljóst fyrir hvort um er að ræða barnsmóður Conley, sem hann skaut í dag, eða aðra konu.
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Innlent Leigubílar verði á lituðum númeraplötum Innlent Svona mun Suðurlandsbraut líta út Innlent Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Innlent Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin Innlent Fleiri fréttir „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Sjá meira