Sumir Rússar ekki velkomnir á Svalbarða Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 12. ágúst 2015 13:00 Margir Rússar starfa í námuiðnaðinum á Svalbarða. Fréttablaðið/AFP
Yfirvöld í Rússlandi telja Noreg svívirða alþjóðlegan sáttmála um málefni Svalbarða. Nýleg tilskipun frá norsku ríkisstjórninni bannar tilteknum rússneskum ríkisborgurum að heimsækja Svalbarða. Enn fremur hefur Noregur innleitt nýjar landamærareglur sem heimila þeim að vísa öllum rússneskum ríkisborgurum sem eru á bannlistanum á brott frá Noregi. Aðgerðin er hluti af þvingunaraðgerðum Evrópusambandsins gegn Rússlandi. Samkvæmt sáttmálanum hafa Rússar ferðafrelsi á svæðinu líkt og þegnar þeirra ríkja sem eiga aðild að sáttmálanum. Dímítrí Rogosín, varaforsætisráðherra Rússlands, er einn þeirra sem er ekki heimilt að ferðast til Svalbarða. Hann hefur lýst yfir megnri vanþóknun á aðgerðum Noregs og sagði meðal annars á Twitter-síðu sinni að Norðmenn væru öfundsjúkir þar sem Rússar hefðu stungið sér til sunds við norðurpólinn. Þá hefur Alexander Bortníkov, formaður öryggismálanefndar Rússlands, boðað aukna veru rússneska flotans við norðurskautið. Hann segir að með auknum viðskiptahagsmunum og umferð á svæðinu beri ríkinu að vernda sína hagsmuni. Hann segir að Rússland hafi svigrúm í alþjóðalögum til að auka umferð herskipa um svæðið. Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefur sett málefni norðurslóða ofarlega í forgang undanfarin ár.
Mest lesið Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Fannst heill á húfi Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Erlent „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Innlent Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent Fleiri fréttir Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi Sjá meira