Smyglmál í Skógafossi enn óupplýst Sveinn Arnarson skrifar 19. september 2015 07:00
Enn er óupplýst fíkniefnasmygl í Skógafossi í júní síðastliðins þegar tæp þrjú kíló af kókaíni fundust í bakpoka í einum gámi skipsins. Rannsókn málsins hefur dregist nokkuð í rannsókn og gengur afar hægt að sögn lögreglu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var verklagsreglum tollstjóraembættisins ekki framfylgt þegar efnin fundust. Þegar fíkniefni finnast við komuna til íslands er það verklag viðhaft að tryggja að rannsóknarhagsmunir spillist ekki, tryggja nánasta umhverfi og gera lögreglu viðvart. Fíkniefnin fundust í gámi, þar sem bátsmenn Skógafoss geyma verkfæri sín, klukkan rúmlega tvö um nóttina. Einn heimildarmanna Fréttablaðsins sagði að öllum bátsmönnum á staðnum hefði verið sagt að fíkniefni hefðu fundist um borð án þess að nokkur lögregla kæmi á vettvang. „Við förum reglulega yfir allt verklag og hvernig við vinnum okkar vinnu þegar fíkniefni finnast á okkar svæði,” segir Kári Gunnlaugsson yfirtollvörður. „Við gerðum það einnig sérstaklega eftir þessa leit. Fíkniefnin finnast þarna um nóttina og rannsóknarlögreglan er ekki tiltæk strax þarna um nóttina.“Aldís Hilmarsdóttir, yfirmaður deildar lögreglunnar sem rannsakar skipulagða glæpastarfsemi og fíkniefnamál, segir þetta mál hafa dregist nokkuð í rannsókn og það gangi of hægt. Aldís vill þó ekki meina að rannsókn málsins sé komin í eitthvert öngstræti. „Við höfum sent rannsóknargögn utan til greiningar og bíðum eftir niðurstöðum úr þeim. Rannsókn málsins gengur hægt. Ef það er satt að starfsmenn tollstjóraembættisins hafi ekki unnið eftir fyrir fram ákveðnum verklagsreglum er það ekki til þess að hjálpa til við rannsókn málsins,“ segir Aldís. Allir bátsmenn hafa verið teknir í skýrslutöku vegna málsins. Enn hefur enginn verið handtekinn eða færður í gæsluvarðhald né fengið réttarstöðu grunaðs manns i málinu.
Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Fleiri fréttir Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Sjá meira