500 manns vilja Glaðheima á betri stað eftir að barn varð fyrir bíl sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 6. október 2015 11:00 Töluverð vegalengd er frá skólanum að frístundaheimilinu, líkt og sést á þessu korti. Stúlkan varð fyrir bíl á horni Holtavegar og Langholtsvegar. mynd/samsýn/ja.is
Hátt í fimm hundruð manns hafa ritað nafn sitt á lista foreldra barna í Langholtsskóla þar sem þess er krafist að frístundaheimilinu Glaðheimum verði fundin betri og barnvænni staðsetning. Listanum verður skilað til skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar á næstu dögum. Listinn var settur á laggirnar eftir að sjö ára stúlka varð fyrir bíl á leið sinni heim í síðasta mánuði, á gatnamótum Holtavegar og Langholtsvegar. Stúlkan slapp með skrámur en móðir hennar, Anna Kristín Guðmundsdóttir, segir það hafa verið tímaspursmál hvenær slys af þessu tagi myndi gerast.Gerði allt rétt „Þetta var í fyrsta skipti sem hún labbaði ein heim, en hún var búin að suða um það lengi. Hún gerði allt rétt og fór leiðina sem ég sagði henni að fara, upp Holtaveginn. Þegar hún er svo að fara yfir gatnamótin á grænu ljósi kemur bíll í hægri beygju, sér hana ekki og keyrir á hana. Ökumaðurinn var sem betur fer á mjög lítilli ferð, þannig að það fór allt betur en á horfðist,“ segir Anna. Hún segir foreldra og kennara hafa miklar áhyggjur af stöðu mála. „Nú síðast lýsti kennari í skólanum yfir áhyggjum, til dæmis af slæmri lýsingu á morgnanna og miklum umferðarþunga. Henni finnst hún alltaf næstum því verða vitni af því að barn stórslasist þarna. Þannig að foreldrar hafa verið að tala sig saman um að skiptast á að vakta öll gatnamótin. Núna er einn gangbrautavörður sem fylgist með, en nær þó bara að fylgjast með hluta af gatnamótunum.“Upphaflega tímabundin staðsetning Frístundaheimilið er á horni Sæbrautar og Holtavegar, en að sögn Önnu átti sú staðsetning upphaflega að vera tímabundin. „Frístundin var til að byrja með í skólanum sjálfum, en þegar 2000 árgangurinn kom þá sprengdu þau það pláss utan af sér og átti ný staðsetning að vera til bráðabirgða. Það eru tíu ár komin tíu ár síðan, en eldri dóttir mín var einmitt í þessum árgangi.“ Lóð Glaðheima er ógirt og opin út á Sæbraut. Anna segir foreldra margoft hafa bent á hættur í kring, því bæði sé erfitt fyrir börn að leggja mat á þá hættu sem þau geti komið sér í, og að erfitt geti reynst fyrir starfsfólk að fylgjast með öllum þeim börnum sem frístundaheimilið sækja. Þá þykja foreldrunum jafnframt afar óviðeigandi að verslun með kynlífsvörur og tilheyrandi útstillingum standi andspænis frístundaheimilinu. Því skora þeir á Reykjavíkurborg að finna heimilinu nýja og varanlega staðsetningu í Laugardalnum.
Tengdar fréttir Vilja Glaðheima á barnvænni stað Ástæðan er meðal annars slysahætta og hávaða- og eiturefnamengun. 23. september 2015 21:33 Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira
Vilja Glaðheima á barnvænni stað Ástæðan er meðal annars slysahætta og hávaða- og eiturefnamengun. 23. september 2015 21:33