Innlent

Vilja Glaðheima á barnvænni stað

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Ástæðan er meðal annars slysahætta og hávaða- og eiturefnamengun.
Ástæðan er meðal annars slysahætta og hávaða- og eiturefnamengun. vísir/vilhelm
Íbúar í Langholtshverfi hafa sett af stað undirskriftasöfnun þar sem þess er krafist að Reykjavíkurborg finni frístundaheimilinu Glaðheimum betri og barnvænni staðsetningu. Ástæðan er meðal annars slysahætta og hávaða- og eiturefnamengun.

Frístundaheimilið er á horni Sæbrautar og Holtavegar og er lóð þess ógirt og opin út á Sæbraut. Foreldrar barnanna segja það skapa mikla hættu fyrir börn sem hafi ekki þroska eða reynslu til að leggja mat á þá hættu sem þau geti komið sér í. Erfitt geti reynst fyrir starfsfólk að fylgjast með öllum þeim sem frístundaheimilið sækja.

Kynlífsverslun andspænis frístundaheimilinu

Þá er jafnframt gagnrýnt að verslun með kynlífsvörur og tilheyrandi útstillingum standi andspænis Glaðheimum. „Foreldrum þykir almennt afar óviðeigandi að staðsetja slíka verslun í nærumhverfi barnanna,“ segir á síðu undirskriftasöfnunarinnar.

Þá eigi börn, samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, rétt á að lifa og þroskast í besta mögulega umhverfi. „Allar ákvarðanir stjórnvalda ber að taka með sjónarmiðið um það sem barni er fyrir bestu í forgangi. Okkur ber að tryggja börnunum okkar þá vernd og umönnun sem þau eiga tilkall til og rétt á, á grundvelli Barnasáttmálans sem nú hefur lagagildi á Íslandi.“

Viðráðanlegt verkefni

Því ætti það að vera stjórnvöldum viðráðanlegt verkefni að finna frístundaheimilinu nýja og varanlega staðsetningu í Laugardalnum. Til dæmis sé ónýtt lóð neðan við lóð Langholtsskóla sem gæti verið kjörin staðsetning fyrir öruggt og barnvænt frístundaheimili.

„Við skorum á Reykjavíkurborg að bregðast við fyrir börnin okkar sem allra fyrst.“

Undirskriftasöfnunin var sett á laggirnar fyrir tæpri viku og hafa nú rúmlega 150 manns ritað nafn sitt á listann. Hann verður afhentur skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar hinn 30. september næstkomandi. 

Söfnunina má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×