Vísindamenn NASA við rannsóknarstörf hér á landi Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 26. mars 2015 19:30
Vísindamenn á vegum NASA, bandarísku geimferðastofnunarinnar, eru staddir hér á landi til að mæla áhrif loftlagsbreytinga á jöklum í Grænlandi. Við mælingarnar er notuð sérútbúin rannsóknarflugvél af gerðinni Lockheed U-2 en gengur nú undir heitinu ER-2 sem stendur fyrir Earth Resources. Bandaríska geimferðastofnunin, NASA, á tvær slíkar vélar en áður voru þær meðal annars notaðar af bandarísku leyniþjónustunni við njósnir. Vélin er í dag notuð við rannsóknir en hún er útbúin fullkomnum mælitækjum og fylgja vélinni hingað til lands um 30 vísindamenn. Þá er hún hönnuð til að fljúga í hárri lofthæð, eða rúmlega 70.000 fetum og þarf flugstjóri vélarinnar því að klæðast sérstökum geimbúning. Denis Steele, flugstjóri vélarinnar, segir að vélin sé einstök að mörgu leyti, meðal annars sé lending hennar ein sú erfiðasta sem um getur en að henni koma tveir flugstjórar. Annar flýgur vélinni, en hinn hefur það hlutverk að fylgja flugvélinni eftir í sérstökum bíl sem keyrir á allt að 200 kílómetra hraða. Ástæða þess að lending vélarinnar er erfið er að engin hliðarhjól eru á vélinni og því segir Denis að þetta sé eins og að lenda 10 tonna reiðhjóli. Fréttastofa fékk að fylgjast með lendingu vélarinnar í gær frá nokkrum sjónarhornum eins og sjá má hér að ofan.
Tengdar fréttir Vél á vegum NASA í Keflavík Vísindamenn á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar eru hér á landi við rannsóknir. 24. mars 2015 15:39 Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira
Vél á vegum NASA í Keflavík Vísindamenn á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar eru hér á landi við rannsóknir. 24. mars 2015 15:39