Brasilískur landsliðsmaður nýr liðsfélagi Viðars og Sölva í Kína Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2015 08:15
Kínverska félagið Jiangsu Guoxin-Sainty F.C. er hvergi nærri hætt að styrkja sig fyrir komandi tímabil en áður höfðu Kínverjarnir samið við íslensku landsliðsmennina Viðar Örn Kjartansson og Sölva Geir Ottesen. Forráðamenn Jiangsu Sainty eru nú í viðræðum um kaup á brasilíska sóknarmiðjumanninum Jádson en þessi reynslubolti spilaði á sínum tíma í sex ár með úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk. Jádson á að baki átta landsleiki fyrir Brasilíu en hann var í leikmannahópi liðsins í Álfubikarnum sumarið 2013 og skoraði fyrir Brasilíu í Suður-Ameríkukeppninni í Argentínu árið 2011. Jádson er orðinn 31 árs gamall og hefur frá árinu 2011 spilað í heimalandinu, fyrst með Sao Paulo og síðasta tímabil með Corinthians. Sao Paulo og Corinthians skiptu á honum og Alexandre Pato, fyrrum leikmanni AC Milan, í febrúar 2014. Jádson fékk tíuna hjá Corinthians og var með 4 mörk og 8 stoðsendingar í 31 leik á síðasta tímabili.Meu Timao segir frá því að Jádson sé á leiðinni til Kína fyrir lok vikunnar þar sem að hann muni skrifa undir þriggja ára samning. Þar kemur jafnframt fram að tilboð Kínverjanna sé það gott að hvorki félagið né Jádson geti hafnað því.
Fótbolti Mest lesið Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Íslenski boltinn Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Freyr himinlifandi með íslensku strákana Fótbolti „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Enski boltinn Óttast að Isak hafi fótbrotnað Enski boltinn Fleiri fréttir Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Freyr himinlifandi með íslensku strákana Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Barcelona með fjögurra stiga forskot inn í nýtt ár Alvöru innkoma: Kjartan með stoðsendingu gegn Celtic í sínum fyrsta leik Sandra María hetjan og með þeim markahæstu í Þýskalandi Katla skoraði annan leikinn í röð Tómas Bent og félagar unnu Rangers og náðu átta stiga forskoti á toppnum Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Hildur áfram í bikarnum og Amanda enn á toppnum Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Sjá meira