Leyniskjöl: Ólafur sagður hafa lýst yfir stuðningi Íslands við arabísk málefni Aðalsteinn Kjartansson skrifar 22. júní 2015 12:44 Forsetinn kannast ekki við að hafa fundað með sádískum embættismönnum. Vísir/Vilhelm
Wikileaks hefur birt tugir þúsunda sendiráðsskjala frá Sádi arabíu. Í nokkrum skjalanna sem birt hafa verið er fjallað um Ísland. Þar er meðal annars fjallað um fund forseta Íslands með sendiherra ríkisins í Stokkhólmi árið 2013, sem forsetinn segir þó aldrei hafa farið fram. Wikileaks hefur birt rúmlega 60 þúsund leynileg sendiráðsskjöl frá Sádi Arabíu. New York Times greinir frá því að engin stórmál komi fram í skjölunum en að þau gefi glögga mynd af því hvernig samskipti Sádi Arabíu við umheiminn virki. Í sendiráðsgögnum Sádi Arabíu er fjallað um Ísland; meðal annars um fund Ólafs Ragnars Grímssonar forseta með sendiherra ríkisins í Stokkhólmi árið 2013. Þar er haft eftir Ólafi Ragnari að Ísland styddi öll arabísk málefni á alþjóðlegum vettvangi. Í samtalinu talaði forsetinn um hið mikla hlutverk sem Sádi Arabía hefur við að ná friði í heimshlutanum. Í skjölunum kemur fram að Ólafur Ragnar hafi lýst yfir vilja til að heimsækja Sádi Arabíu og hvernig honum yrði heiður að því að hitta leiðtoga ríkisins og sádíska embættismenn til að ræða fleti á samvinnu landanna tveggja.Stundin fjallaði um skjalið um helgina en það er birt á vefsíðu Wikileaks. Til stendur að birta enn fleiri skjöl á vefnum. Í yfirlýsingu frá forsetaembættinu segir að Ólafur Ragnar hafi aldrei átt slíkan fund. Einu samskipti forsetans við fulltrúa Sádi Arabíu séu við núverandi sendiherra ríkisins þegar hann afhenti trúnaðarbréf sitt 3. mars síðastliðinn. Önnur samskipti við fyrirrennara sendiherrans hafi verið þegar þeir afhentu sín trúnaðarbréf.
Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Erlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Erlent Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Innlent Fleiri fréttir Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Sjá meira