Skemmdarverk við bústað Sjálfsbjargar Nadine Guðrún Yaghi skrifar 8. október 2015 08:00 Engin á vegum Sjálfsbjargar var í bústaðnum þessa nótt. mynd/aðsend „
Við vitum ekkert hverjir voru á ferli og unnu þessi skemmdarverk,“ segir Ásta Dís Guðjónsdóttir, formaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu, um skemmdarverk sem unnin voru a lóð Krika, sumarbústaðar Sjálfsbjargar sem stendur við Elliðavatn, aðfaranótt mánudags. „Grindverk framan við bústaðinn var brotið og annað grindverk aftan við bústaðinn. Svo voru ummerki um að bíll hefði keyrt upp að húsinu því það voru för í grasinu.“ Sjálfsbjörg rekur félagsstarf fyrir fatlaða í bústaðnum á sumrin og heldur úti starfi um helgar í september. Enginn á vegum Sjálfsbjargar var í bústaðnum þessa nótt.Ásta fékk símtal á mánudagsmorgun frá nágrönnum Krika þar sem henni var tilkynnt að mikið af glerbrotum væri á lóðinni og að skemmdir hefðu verið unnar. „Ég fór þá sjálf upp eftir að kanna málið og þá blöstu skemmdirnar við mér. Svo fann ég slatta af bjórflöskum í grasinu fyrir neðan bústaðinn,“ segir Ásta. Hún hafði samband við lögreglu í kjölfarið sem kom á staðinn og tók skýrslur. „Svo höfðum við samband við tryggingafélagið okkar og þá kom í ljós að þeir tryggja ekki það sem er utanhúss hjá okkur.“ Að sögn Ástu er Kriki eini útivistarstaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sem sérstaklega er ætlaður fötluðum og aðstandendum þeirra. „Því þykir mér þetta mjög leiðinlegt.“ Ásta biðlar því til skemmdarvarganna að hafi þeir samvisku og vilji aðstoða við uppbyggingu á ný megi þeir hafa samband við Sjálfsbjörg.
Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Fleiri fréttir Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Sjá meira